Menntamál - 01.10.1953, Page 10

Menntamál - 01.10.1953, Page 10
76 MENNTAMÁL kennsluaðferðir og námsefni í framhaldsskólum einkum High Schools og Colleges. í High Schools eru nemendur víð- ast 12—18 ára gamlir. Mætti því ef til vill segja að þeir samsvari unglinga-, mið- og gagnfræðaskólum hér, og auk þess 2 eða þrem fyrstu deildum menntaskóla. College samsvarar svo síðustu deildum menntaskóla og tveim eða þrem fyrstu árum í háskóla hér. (Hér eftir verða High Schools nefndir gagnfræðaskólar, en Colleges mennta- skólar.) Kennaramenntun í Bandaríkjunum er nokkuð með öðr- um hætti en almennt gerist á Norðurlöndum. Að vísu eru þar kennaraskólar, eða Teacher Colleges, sem veita al- menna kennaramenntun, en þau veita jafnframt öll rétt til framhaldsnáms við háskóla, og langflestir kennarar sækja menntun sína til háskólanna. Megináherzla er lögð á upp- eldisfræði, þjóðfélagsfræði og kennslutækni. Munu flestir kennarar verja að minnsta kosti helmingi námstímans til þessara fræða, en afganginum til faglegrar sérmenntunar, ef um framhaldsskólakennara er að ræða. Laun kennara fara eftir því, hve mikillar skólamenntun- ar hlutaðeigandi kennari hefur aflað sér. Vel getur því hent, að smábarnakennari hafi doktorsnafnbót í uppeldis- fræði eða kennslutækni og hafi hærri laun en gagnfræða- kennari, sem aðeins hefur magistersnafnbót. Doktor við gagnfræðaskóla hefur sömu laun og maður með sömu nafn- bót við barnaskóla. Algengt er, að kennarar sæki kveldnám- skeið eða skóla, jafnframt því að kenna, til þess að auka menntun sína og þar með laun. Þá sækja langflestir kenn- arar námskeið á sumrin, að minnsta kosti öðru hverju. Mun talið ófært, að kennari viðhaldi ekki þekkingu sinni með námskeiðum þessum og ef ungir kennarar sækja ekki námskeið, þá hækka þeir ekki í launum — fá ekki launa- viðbót sökum aldurs. Launin munu vera bundin við mennt- un vegna þess, að mikill kennaraskortur hefur verið í mörgum ríkjum um langt skeið. Hafa því margir skólar

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.