Menntamál - 01.10.1953, Síða 29

Menntamál - 01.10.1953, Síða 29
MENNTAMÁL 95 stjóri blaðsins. Tilefni þeirra var það, að mikill sparnaðar- áhugi hafði gripið bæjarstjórn og hún stórhækkað skóla- gjöld með þeim afleiðingum, að skólabörnum fækkaði úr u. þ. b. 90 niður í 28. Ummæli Þjóðólfs hljóða svo: „Vér viljum minna þessa herra bæjarstjóra á, að áður en þessi skóli var stofnaður, voru götur og torg bæjarins fullt af börnum, sem í stað þess að læra voru um hádag- inn við leik og læti. Síðan brá svo skjótt við, að það vakti gleði hvers góðs manns að sjá fjölda barna hvern til- tekinn tíma ganga í skóla. Þó skólinn hafi ekki staðið lengi — 13 eða 14 ár — þá eru nú mörg af þeim börn- um, sem þar hafa menntazt, komin á fullorðins aldur, og vér höfum menntun þeirri, sem þau hafa þar fengið, það að þakka, að það er eins og nýtt líf, dáðmeiri og betri bæjarbragur hafi hér síðan smám saman vaknað, og af þeirri ungu kynslóð, sem þar hefur siðazt, eru margir af- bragðsmenn að reglusemi, atorku og menntun, enda eru þeir félagslegri í hvívetna en hinir, sem litla eða enga menntun hljóta og alast upp í einræningsskap og tilsagn- arleysi.“ Þetta var dómur Matthíasar Jochumssonar. Ætli aðrir hafi verið honum skyggnari? NOKKTJR VIÐFANGSEFNI MILLIÞINGANEFNDAR í SKÓLAMÁLUM. En nú skulum við víkja að fræðslulögunum nýju og þeim verkefnum, sem fyrir hendi voru í skólamálum lands- ins, um það leyti sem þau voru samin og sett. Jafnframt því sem starfsgreinar verða fjölþættari og flóknari, gerist sú breyting, að unglingar verða síðar til- búnir að hefja starf í þeim. Þessi breyting hefur æ siglt í kjölfar framfara í atvinnuháttum. Bernskan hefur lengzt, undirbúningsárum fjölgað. í frumstæðum þjóðfélögum eru börn og unglingar miklu fyrr komin til almennra starfa

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.