Menntamál - 01.10.1953, Page 43
MENNTAMÁL
109
F I M M T U G U R :
Ólafur Þ. Kristjánsson
kennari.
Ólafur Þ. Kristjánsson
kennari við Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði, fyrr-
um kennari við Barna-
skóla Hafnarfjarðar, varð
fimmtugur 28. ágúst s. 1.
Við höfum átt náið sam-
starf síðustu 12 ár, og það
hefur verið með þeim
hætti, að á betra gæti ég
ekki kosið. Fyrir því er
mér ljúft að minnast hans
örfáum orðum af þessu
tilefni.
Ólafur á flesta þá kosti,
sem ég ætla, að góður
kennari þurfi að eiga.
Hann er afburðaduglegur og ósérhlífinn að hverju, sem
hann gengur, samvizkusamur og traustur eins og klett-
ur, glaðlyndur, léttur og skemmtilegur í viðmóti og þó
skapmaður, glöggur á menn, bæði ættir, andlit og innri
gerð, mannúðlegur í skoðunum og þó hæfilega strangur.
Auk þessa er hann óvenjufjölmenntaður, fullur áhuga á
margvíslegum fræðum, einkum mannfræðum, og sínem-
andi, eins og andlega vakandi mönnum ber að vera.
Ólafur Þ. Kristjánsson.