Menntamál - 01.12.1956, Blaðsíða 26
152
MENNTAMÁL
SIGURÐUR GUNNARSSON:
Frjáls skólastörf.
SÍÐARI GREIN.
í fyrri grein minni ræddi ég nokkuð um starfsuppeldis-
fræðina, einkum þá grein hennar, sem kennd er við austur-
ríska uppeldis- og sálfræðinginn dr. Else Köhler og ég
kynntist að nokkru í Gautaborg veturinn 1953. Var það
einkum hjá kennurunum Max Glanzelíus og Ester Her-
mansson. Hefur þessi grein starfsuppeldisfræðinnar oft
verið nefnd, og það með réttu, hin frjálsa óbundna vinnu-
eða vinnubókakennsla, til aðgreiningar frá hinni bundnu
vinnubókakennslu, sem flestir kennarar þekkja hér á landi,
og hafa beitt meira og minna í starfi sínu.
Ég taldi aðferðina mjög athyglisverða og nemendum
þroskavænlegri en sérhverja aðra, kennsluaðferð, sem ég
hefði kynnzt. Máli mínu til stuðnings vitnaði ég til kunnra
kennara í Svíþjóð, kennara, sem gerzt hafa brautryðjendur
þessarar stefnu þar í landi og víðar. Að lokum lýsti ég stutt-
lega, hvernig unnið er samkvæmt þessum frjálsa hætti.
í þessari grein mun ég skýra nánar frá nokkrum atriðum
í sambandi við þessa starfsaðferð og segja frá athyglis-
verðum starfsháttum kennara í Osló, sem vinna á mjög
frjálsri línu, en sumir þó með lítið eitt öðrum hætti. Loks
mun ég ræða um, hvort við getum tekið upp þessi nýju
frjálsu og þroskavænlegu vinnubrögð í skólum okkar í
næstu framtíð.
Ég gat þess fyrr, að skipta mætti hinni frjálsu starfsað-
ferð í fimm meginþætti, til hægðar- og skilningsauka, þeg-
ar frá henni væri skýrt. í reyndinni er líka alltaf starfað
samkvæmt þeim. Þessa fimm þætti ætla ég að leyfa mér að
rifja hér upp til glöggvunar.