Menntamál - 01.12.1957, Blaðsíða 43
MENNTAMÁL
233
meðferð ungbarna og helztu atriði heimahjúkrunar.
Einnig er nokkur fræðsla um kynferðismál nauðsynleg,
en ekki er hún á færi annarra en reyndra kennara. í barna-
skólum yrði um að ræða fá aðalatriði, sett fram á minnis-
stæðan hátt og studd myndum, en í framhaldsskólum end-
urtekningu með rækilegri skýringum á orsökum og af-
leiðingum.
Þó að heilsugæzla í skólum verði í höndum heilbrigðis-
starfsliðs, að því leyti sem hún krefst sérþekkingar, er
árangur mjög kominn undir traustri samvinnu skóla-
stjóra og kennara annars vegar og heilbrigðisstarfsliðs
hins vegar, svo og undir samvinnu skóla og heimilis. Þátt-
ur kennara, að því er varðar sjálft eftirlitið, er fólginn í
því að vera jafnan á verði um allt, er bent geti til, að
nemandi sé heilsuveill eða miður sín á einhvern hátt, og
að koma slíkum nemanda í hendur skólal'æknis hið fyrsta.
Með því að kennarar hafa nemendur fyrir augum sér dag-
lega, hafa þeir góð skilyrði til að fylgjast með breyting-
um á útliti þeirra, hátterni og ástundun. Sömuleiðis kem-
ur það í hlut skólastjóra og kennara að fylgja fram ýms-
um fyrirmælum skólalæknis og skólahjúkrunarkonu. Er
sízt of djúpt tekið í árinni, þó að fullyrt sé, að starf heil-
brigðisstarfsliðs komi ekki að hálfum notum á við það,
sem verið gæti, ef kennarar eru ekki virkir samverkamenn
þess.