Menntamál - 01.08.1960, Side 11

Menntamál - 01.08.1960, Side 11
MENNTAMÁL 105 verði aldrei læs. Ég tel, að þessi skoðun eigi ekki við rök að styðjast. En nokkur hluti barna á erfitt með að læra að lesa, og þau koma auðvitað ólæs í skólann. Þeim sækist svo námið seint og þannig er kannske þessi skoðun orðin til. Oft kemur það fyrir, að röð bekkjanna breytist strax á 1. vetri. Bekkir, sem skipaðir eru ólæsum börnum að haust- inu, ná lengra en bekkir skipaðir börnum, sem byrjuð voru að lesa. Oft eru líka tveir eða fleiri bekkir í hverjum aldursflokki svo líkir að erfitt er að gera upp á milli þeirra. Og þó að um misjafna bekki sé að ræða, hvað kunnáttu snertir, eru aldrei skýr skil á milli. Framför barnanna er misjöfn innan bekkjanna, og duglegustu börnin í bekk nr. 2 verða fljótt duglegri en þau neðstu í bekk nr. 1, og þannig gengur það gegnum alla bekkjarröðina. Ég veit, að bekkjarröðunin er mjög viðkvæmt mál fyrir foreldra, og er það mjög eðlilegt. En við röðunina höfum við það eitt í huga, að barnið sé sett þar, sem við teljum að það eigi bezt heima. Einnig reynum við að taka tillit til sérstakra ástæðna, eftir því sem við verður komið. Eftir þeirri kynningu, sem við höfum fengið af börnun- um í sept., röðum við börnunum í lok þess mánaðar, með það fyrir augum, að sem allra minnstu þurfi að breyta yfir veturinn. Þá reynum við að fara eftir kunnáttu og getu barnsins, áliti kennarans og nú síðustu tvö árin einn- ig skólaþroskaprófunum. Bezt er að fara stillt af stað. Það eru erfið tímamót í ævi margra barna, er þau hefja skólagöngu. Flest börn eru þá í fyrsta sinn að nokkru falin til varðveizlu öðrum aðilum en foreldrunum, þar sem gerðar eru til þeirra ákveðnar kröfur um að leysa viss verkefni. í stað leiksins koma nú bundin verkefni, aðlögun að nýju umhverfi, þar sem fara verður eftir ákveðnum reglum. Barnið verður að samlagast félögum sínum og taka tillit til þeirra. Það verður að læra að taka við sam-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.