Menntamál - 01.08.1960, Page 16

Menntamál - 01.08.1960, Page 16
110 MENNTAMÁL fljótt, og áður en varir er kennarinn í vandræðum með að velja heppilegt lestrarefni. Þetta hefur lagazt nokkuð á síðari árum, en mikið vantar enn á, að við höfum nægjanlegt af heppilegum bókum. Ég hef tekið það ráð að nota mikið af fjölrituðum blöðum framan af vetr- inum, en taka ekki bók í notkun fyrr en börnin geta lesið hana án mikilla erfiðleika. Ég veit, að margir kennarar hafa góða reynslu af að láta börnin ekki fá bók fyrr en þau eru komin nokkuð af stað í lestrinum. Bók, sem barn á erfitt með að lesa, er leiður förunautur í töskunni og ekki óalgengt, að foreldrar kvarti undan, að barnið fáist ekki til að líta í bók heima. En hitt er líka víst, að þó fyrir- setningu sé stillt í hóf og heimaverkefni vel undirbúin í skólanum, geta verið börn í bekkjunum, sem eiga erfitt með að leysa sín heimaverkefni. En það ber að stefna að því að þau séu eins fá og mögulegt er og helzt engin. Lengst af hefur tafla, krít og bók verið aðaltækin við að kenna lestur. Á þessu er nú að verða töluverð breyting. í öðrum löndum hefur verið útbúinn mikill fjöldi hjálpar- tækja við lestrarnámið. Þessum tækjum er ætlað að skapa fjölbreytni í kennslunni, til að æfa betur einstök atriði og skapa möguleika á að gefa einstökum börnum, sem kunna að vera á undan eða eftir aðalhópnum, aukaverk- efni við sitt hæfi. Ofurlítið höfum við fengið af slíkum tækjum upp á síðkastið og koma vonandi fleiri á næstu árum. R eikningurinn. Næst mun ég minnast lítið eitt á reikninginn. Eftir námsskránni á í 7 ára bekkjum að kenna samlagn- ingu og frádrátt með tölum upp að 20. 1 sumum bekkjum er þetta auðvelt fyrir flest börnin, en í öðrum bekkjum erfitt eða ómögulegt að ná nægjanlegri leikni með þess- ar tölur. Mörgum kann að virðast, að þetta sé lítið náms- efni, en það er afar mikilvægt, að börnin verði leikin að

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.