Menntamál - 01.08.1960, Side 39

Menntamál - 01.08.1960, Side 39
MENNTAMÁL 133 Fram til þessa hafa skólarnir ráðið mestu um, hvaða leið nemendur fóru í framhaldsnámi. Nýju lögin leggja þetta meira í hendur nemenda sjálfra. Próf, einkum inn- tökupróf, eru felld niður, en nemendum veitt ráð og leið- beiningar, ef sýnt er, að hæfileikar og óskir fara ekki saman. Nemendum er einnig gert auðveldara en áður að flytjast milli hliðstæðra deilda með ólíku námsefni. Til að deildaskipting sé möguleg þarf minnst 75 nem- endur í aldursflokk. Þó er mjög varað við of stórum skól- um. Skóla, sem hefur 12—15 bekkjardeildir, nægir ein sérstofa fyrir námsgrein. Til að nýta tvær sérstofur til fulls þarf skólinn að hafa 24—30 deildir, sem þykir of mikið í unglingaskólum, ef hægt er að komast hjá því. Lögin heimila sveitarfélögum að bæta við 10. skólaár- inu. Það mundi veita almenna fræðslu auk undirbúnings undir sérnám. Það er líklegt, að aðsókn að menntaskólunum aukist, þegar áhrifa samfellda skólans fer að gæta. Um 11,5% nemenda fer nú í menntaskóla, en áætlað er, að sú tala verði komin upp í 15% árið 1965. Það er því sýnilegt, að menntaskólunum verður að fjölga, og einnig er mjög til athugunar að auka fjölbreytni þeirra samkvæmt sænskri fyrirmynd. Mjög umfangsmiklar tilraunir með hinn samfellda skóla hafa verið gerðar í Noregi frá 1955, og byggir löggjöfin á fenginni reynslu af þeim. Þau skólahéruð, sem þátt tóku í tilraununum, skiptu nemendum eftir 7. skólaár í bókleg- ar og verklegar deildir. Bóklegar deildir bjuggu undir tvenns konar lokapróf, með tveimur erlendum málum eða einu. Dreifing nemenda í þessar deildir var mjög svipuð öll árin. Milli 50 og 60% fóru í verknámsdeildir, 20—25% í deildir, sem kenndu tvö erlend mál og 17—18 % 1 deildir, sem kenndu eitt erlent mál. Skipt var eftir gáfnaprófum, skólaþroskaprófum, prófum í norsku og reikningi og síð- ast, en ekki sízt, eftir samtölum við nemendurna. Skoð-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.