Menntamál - 01.08.1960, Side 69

Menntamál - 01.08.1960, Side 69
MENNTAMÁL 163 1) Að ná nægilegu valdi á erlendu máli til að geta auð- veldlega tjáð sig með orðum og lesið létt ritmál. 2) Að ná meiri leikni í málinu til þess að geta rann- sakað bókmenntir og vísindarit og kynnzt menningu þjóð- arinnar, sem talar það. 3) Að efla kynni og skilning milli þjóða heims. Nefndin taldi, að barnaskóiinn gæti auðveldlega náð hinu fyrsta af þessum þremur markmiðum, ef gert er ráð fyrir, að tungumálanáminu séu helguð nægilega mörg ár. Hún telur einnig fullvíst, að á barnafræðslustiginu megi stíga stórt skref í átt til bætts skilnings þjóða í milli, en álítur jafnframt vafasamt og stundum jafnvel skaðlegt að reyna nám í bókmenntum á þessu stigi. Á að gera nám í erlendu tungumáli að skyldu í barnaskóla ? Nefndin komst ennfremur að þeirri niðurstöðu, að enga almenna reglu væri hægt að setja varðandi þessa spurn- ingu. Hún er háð þeim fræðsluhugmyndum, sem ríkja í hverju landi og hversu brýn þörf er á tungumálakunn- áttu, svo og hvort fyrir hendi eru í landinu nauðsynleg skilyrði fyrir tungumálakennslu, s. s. nægur kennara- kostur. I löndum, þar sem fræðslumál eru í höndum allsherjar fræðslustjórna og sama námsefni er kennt í öllum barna- skólum, er sennilegt, að sú skoðun sigri víðast hvar, að kennsla í erlendu tungumáli yrði að vera skylda eins og aðrar námsgreinar, sem kenndar eru. Aftur á móti verður tungumálakennslan nauðsynlega að vera valfrjáls í þeim löndum, þar sem vissir landshlutar fara með stjórn menntamála sinna og einstökum skólum er jafn- vel veitt mikið sjálfsvald í námsskipan sinni. Nefndinni er kunnugt um það, að fjölda mörg fullvalda ríki og ósjálf- stæð landssvæði hafa skyldunám í erlendu tungumáli. Sú spurning skaut upp kollinum, hvort tungumálanám krefðist ekki sérstakra málahæfileika, sem sálfræðilega

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.