Heima er bezt - 01.01.1957, Side 12

Heima er bezt - 01.01.1957, Side 12
Bankaráð, ásamt bankastjóra. í málinu í neðri deild, 18. febr. í frumvarpinu var gert ráð fyrir, að bankinn héti „Landbúnaðarbanki íslands“, en nafnið styttist í meðferð þingsins. Samkv. lögum skyldu vera þrír bankastjórar, og voru þeir skipaðir um áramótin 1929—30, en bankinn sem slíkur var opn- aður til afgreiðslu 1. júlí 1930, rétt eftir alþingishátíð- ina. í desember sama ár opnaði bankinn útibú sitt á Akureyri. Hefur Bernharð Stefánsson alþm. verið þar útibússtjóri frá öndverðu. Samkvæmt lögunum frá 1929 var ætlazt til, að bank- inn starfaði í 6 deildum, og voru þær þessar: 1. Sparisjóðs- og rekstrarlánadeild. 2. Veðdeild. 3. Bústofnslánadeild. 4. Ræktunarsjóður íslands. 5. Lánadeild smábýla við kaupstaði og kauptún. 6. Byggingar- og landnámssjóður. Tvær af þessum deildum voru starfandi áður en Búnaðarbanldnn var stofnaður: Ræktunarsjóður íslands, sem var í rauninni stofnaður árið 1900, en endurskipu- lagður og efldur árið 1925, og Byggingar- og land- námssjóður, sem var stofnaður með lögum 1928. En með stofnun Búnaðarbankans og framkvæmd þeirrar stefnu í landbúnaðarmálum, sem starfsemi hans er tengd við, var þeim sköpuð ný aðstaða og stoðir þeirra treyst- ar. Fjármagn veðdeildar hefur jafnan verið lítið, enda lá starfsemi hennar lengi niðri, en hefur þó verið bænd- um nokkur stuðningur öðru hverju í seinni tíð. Bú- stofnslánadeildin tók aldrei til starfa og var síðar num- in úr lögum. Starfsemi smábýladeildar varð lítil, og 10 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.