Heima er bezt - 01.01.1957, Page 16

Heima er bezt - 01.01.1957, Page 16
Þórhallur Tryggvason, skrifstofustjóri. BYGGINGARSJÓÐUR. Um íbúðarhúsin í sveitum gegnir öðru máli. Hægt er að gera sér nokkurn veginn glögga grein fyrir tölu þeirra íbúðarhúsa, sem Byggingarsjóður hefur veitt lán til. Þau mega heita jafnmörg og lánin. Þetta fer þó ekki alveg saman, því að fyrir hefur komið í seinni tíð, að veitt hafa verið viðbótarlán til viðbygginga við hús, sem í öndverðu hafa verið byggð með aðstoð Bygg- ingarsjóðs. En slík tilfelli eru tiltölulega mjög fá. Lánveitingar úr byggingarsjóði hafa verið sem hér segir: Tala og upphæð lána úr Byggingarsjóði. Ár Tala lána Upphœð 1929 63 356.300 1930 99 776.200 1931 55 506.400 1932 10 143.000 1933 33 157.700 1934 31 166.700 1935 53 227.600 1936 39 192.225 1937 57 208.685 1938 103 356.500 1939 115 425.800 1940 28 124,540 1941 7 38.600 1942 22 102.200 1943 16 110.300 1944 ........... 1945 ........... 1946 ........... 1947 ........... 1948 .......... 1949 .......... 1950 ........... 1951 .......... 1952 ........... 1953 ........... 1954 ....... 1955 ....... Samtals 1929-1955 .. 31 206.100 37 311.700 29 247.800 214 4.944.700 161 5.489.800 177 5.863.500 205 7.355.600 183 8.669.500 191 9.926.000 173 8.978.500 205 10.335.500 173 9.755.000 2510 75.976.450 Lán út á íbúðarhús úr steinsteypu eru veitt til 42 ára, en út á hús úr öðru efni (timbur, asbest) til skemmri tíma. Ársvextir eru 3 1/2 %, en árgreiðsla (vextir og afborganir) af 42 ára láni er rúml. 4 1/2 % (4,5798) af lánsupphæðinni. Upphæð hvers láns er nú allt að 75 þús. kr. í sambandi við lánin úr Byggingarsjóði er nauðsyn- legt að gera grein fyrir teiknistofu landbúnaðarins, sem starfað hefur á vegum Búnaðarbankans (áður Bygg- ingar- og landnámssj.), fyrstu árin undir stjórn Jóhanns heitins Kristjánssonar, en síðan (eða um 20 ár) undir stjórn Þóris Baldvinssonar. Þegar ákveðið er að endur- byggja íbúðarhús á jörð eða reisa nýbýli, er venjulega rætt við teiknistofuna og fenginn uppdráttur þaðan. Slíkir uppdrættir eru látnir í té ókeypis, og sama er að segja um uppdrætti að útihúsum. Þegar íbúðarhús er komið undir þak, er hægt að fá fyrsta hluta lánsins Finnbogi Sigurðsson, fulltrúi i lánadeild. 14 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.