Heima er bezt - 01.05.1959, Side 36

Heima er bezt - 01.05.1959, Side 36
 W-;-v< ■■:% '• 315. Um miðnæturleytið náði ég landi. Ég batt bátinn örugglega við bryggjuna og fór síðan í land. Þá mæti ég gömlum fiskimanni, sem verðvir alveg hissa og spyr mig, hver ég sé og hvað ég sé að fara á þessum tíma nætur. 316. Ég segi honum frá kringumstæð- um mínum og bið síðan karlinn að gá vel að bátnum fyrir mig, og verði þess þörf, að koma honum þá út í Svartey fyrir mig aftur. Og karlinn heitir mér því. 317. Karlinn spyr mig svo, hvort ég vilji ekki gista hjá sér í nótt. En ég segist ætla að halda tafarlaust áfram. Ég er sem sé smeykur um, að annars muni Perlberg ef til vill takast að ná mér aftur. 318. Snemma dags er ég kominn í af- skekkt og eyðilegt skógarsvæði, og við Mikki erum báðir orðnir þreyttir. En ég er samt ákaflega glaður yfir því að vera kominn svona langt á undan óvin- inum. 319. Allt í einu sé ég eitthvað blika fram undan á milli trjánna. Ég herði nú gönguna, og innan skamms sé ég, hvaðan þessi bjarmi kemur. Uppi á dá- lítilli brekkubrún er smáhýsi, sem hefur kviknað í. 320. Ég hleyp í spretti upp að húsinu. Þar er engan að sjá. Ég lem á dyrnar af öllum mætti, en enginn svarar. Ég ber enn fastara, og Mikki geltir hástöf- um. En engin hreyfing heyrist inni í húsinu. 321. Smám saman eykst eldurinn inni í húsinu. Ég afræð nú að brjóta upp hurðina og næ í stóran trjábol, sem liggur úti á hlaði. Með honum tekst mér að brjóta upp læsinguna. 322. Ég skipa Mikka að vera kyrr fyrir utan. Svo þýt ég inn í reykjarmökkinn. í húsinu er aðeins ein stofa og eldhús. I eldhúsinu finn ég ekkert lifandi, og síðan fer ég inn í stofuna. 323. Þar logar í þiljum og lofti, og í eldsbjarmanum sé ég mann liggjandi á gólfinu endilangan. Hann er sýnilega hálfkæfður af reyknum. Hann hreyfir ögn höndina, en getur ekki staðið upp.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.