Heima er bezt - 01.01.1961, Blaðsíða 8
STEFAN JONSSON, NAMSSTJORI:
Oddur Valentínusson
hafnsöguma&ur frá Stykkishólmi
Oddur Valentínusson hafnsögumaður er fædd-
ur í Hrappsey hinn 3. júní 1876, og varð því
áttatíu og fjögra ára á liðnu sumri. Foreldr-
ar hans voru þá vinnuhjú í Hrappsey hjá
Skúla Sívertsen. Þau fluttu til Stykkishólms sama árið
og Oddur fæddist og bjuggu þar upp frá því. Valentín-
us Oddsson, faðir Odds, var fæddur í Ólafsvík, en
Oddur Ögmundsson, afi hans, var fæddur á Ingjalds-
sandi og Vestfirðingur að ætt. Hann fluttist ungur til
Flateyjar og var þar skipherra hjá Benediktsen í Flatey
og síðar formaður á hákarlaskipum hjá Arna Thorla-
cius í Stykkishólmi, þeim er byggði Norskahúsið í
Stykkishólmi, sem nú er 125 ára gamalt. Gróa Davíðs-
dóttir, móðir Odds Valentínussonar, var fædd í Eyrar-
sveit og ættuð þaðan. Að Oddi standa því í báðar ættir
vestfirzkir og breiðfirzkir ættstofnar. \rar afi hans, eins
og fyrr getur, dugandi skipherra og formaður á há-
karlaskipum hjá dugmestu höfðingjum við Breiðafjörð
á þeim tímum, Benediktsen í Flatey og Arna Thorla-
ciusi í Stykkishólmi.
Foreldrar Odds áttu 10 börn, en aðeins fjögur kom-
ust upp. Voru það bræður þrír: Oddur, Sigvaldi og
Sören og ein dóttir, Málfríður. Á lífi eru bræðumir
tveir, Oddur og Sören.
Oddur Valentínussoh.
Guðrún Hallgrímsdóttir, kona Odds.
Allt frá dögum Eiríks rauða hafa Breiðafjarðarbyggð-
ir átt margan slyngan sjómann og þrekmikla sægarpa.
Einn í þeirra hópi er Oddur VTalentínusson hafnsögu-
maður, sem hér verður minnzt með nokkrum orðum.
Fimmtán ára gamall réðst Oddur í fyrsta skipti há-
seti á seglskútu, árið 1891, en lét af hafnsögumanns-
starfi í Stykkishólmi í desember 1951. Vertíðin hjá hon-
um hefur því staðið í sextíu ár, því að alla tíð stundaði
hann sjómennsku. Fyrst sem skipstjóri á seglskipum og
vélskipum frá Stykkishólmi og Vestfjörðum og síðar
sem hafnsögumaður í Stykkishólmi.
Árið 1903 lauk Oddur skipstjóraprófi í Rönne á
Borgundarhólmi, og tók strax við skipstjórn á fiskiskip-
um, er hann kom heim frá námi. En skipstjórn á skút-
um hafði hann þó haft á hendi áður, próflaus, frá því
árið 1897, er hann var tuttugu og eins árs. Sýnir þetta
sérstaka og óvenjulega sjómannshæfileika hjá Oddi, að
útgerðarmenn skyldu trúa svo ungum, próflausum
manni fyrir skipi og áhöfn. Fyrsta skipið sem Oddur
4 Heirna er bezt