Heima er bezt - 01.09.1964, Page 24

Heima er bezt - 01.09.1964, Page 24
ÞATTUR ÆSKUNNAR RITSTJOm HVAÐ UNGUR NEMUR Kerlingin Mjög víða í hraunum og klettabeltum á Islandi má sjá allskonar myndir, sem líkjast mönnum og dýrum og ýmsu fleiru, eins og t. d. bæjum og skipum. Margir munu kannast við víkingaskipið á vestri barmi Almanna- gjár. Ein merkasta mannsmyndin, sem ég hef séð af þessu tagi er karlimi við götuna frá Kalmanstungu inn að Surtshelli. En margar ágætar klettamyndir, sem líkjast, mönnum eru líka í Dimmuborgum í Mývatnssveit og víðar. — En kerlingin á Kerlingarfjalli, á fjallsbrúninni austan við þjóðveginn urn Kerlingarskarð á Snæfellsnesi er sögulega merkust af öllum þeim „kerlingum“, sem þekkjast hér víða um landið. Kerlingin á Kerbngarfjalli á Snæfellsnesi mun vera um sjö til átta mannhæðir. Hún sést bezt af þjóðveginum, er komið er á norðurbrún skarðsins, — og sé maður á norðurleið, — ef litið er til hægri, þegar komið er niður úr bröttustu sneiðinni á sléttan mel. Er sem þarna standi á fjallsbrúninni stór- vaxinn kvenmaður, höfuðsmár, en allmikill um herðar og mótar lítt fyrir hálsinum með kryppu á baki. Allar útlínur þessa móbergsdrangs minna á kvenmann, og þess vegna hefur hann fengið riafnið Kerling. En Kerlingin við þjóðveginn yfir Kerlingarskarð á Snæfellsnesi er aðeins ein af mörgum slíkum „kerling- umu, sem þjóðsögur segja frá. I svipinn man ég eftir þesum kerlingum, er þjóðsögur nefna: Kerlingu innan við Drangey í Skagafirði, kerlingu við Bæjarfell í Hít- ardal, kerlingu utan við Lambey í Hvammsfirði, kerl- ingu í Jökulsárheiði og kerlingu í Vatnsdalsfjalli. Allar á fjallinu þessar kerhngar eru samkvæmt þjóðsögum um nátttröll, sem orðið hafa að steini, vegna þess að sól skein á þær. jafnan segja þjóðsögurnar í hvaða erindum þær voru, er þær gættu ekki tímans og létu morgunsólina skína á sig að óvöru. — Um kerlinguna við Drangey er þessi saga sögð í Þjóð- sögum Jóns Árnasonar: Nátttröll tvö, karl og kerling, sem áttu heima í Hegranesinu í Skagafirði, þurftu að leiða kú sína yfir fjörðinn, til þess að hún fengi naut. Ekki voru þau komin nema góðan kipp út á fjörðinn, er sólin ljómaði um austurfjöllin og urðu þau þá sam- stundis að steini. Kýrin varð að evjunni, en klettadrang- urinn utan við eyna er tröllkarlinn, sem kúna leiddi, en drangurinn innan við eyna heitir Kerling, en hún rak á eftir kúnni. Um kerlinguna í Bæjarfellinu í Hítardal er sú saga sögð, að þar hafi búið tröllahjón, sem voru nátttröll, og þar í Fellinu er klettastallur, sem Tröllabekkur heitir, en á þeim klettastalli sátu þau oft. Sagt er að karl og kerling hafi dagað þarna uppi. Þessi saga er sögð um kerlinguna við Lambey á Hvammsfirði: „Tvö nátttröll innan úr Breiðafjarðar- dölum tóku sig til eina nótt og brugðu sér vestur yfir Breiðafjörð í Flateyjar-lönd. Sóttu þau þangað ey eina, sem þau ætluðu að gefa Snóksdalskirkju og fara með hana með sér suður í Snóksdalspolla, en þeir eru fyrir norðan mynnið á Hörðudal í Breiðafjarðardölum við

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.