Heima er bezt - 01.09.1964, Side 36

Heima er bezt - 01.09.1964, Side 36
316. Ég snarsný við og hleyp hina leið- ina gegnum hverfið. Hvað vill hann maðurinn sá arna? Hvers vegna er hann að elta mig? Er það bréfið, sem hann vill ná í. Bréfið sem ég hef í vasanum? 317. Flutningabíll kemur akandi frem- ur hægt um hornið. Gæti ég komist upp á pallinn! Ég bíð unz hann er rétt að fara frá mér. Hæ! Ég tek stökk undir mig — hæ og hó! 318. Þarna heppnaðist mér að minnsta kosti að losna við ofsóknara minn! Og bíllinn fer í rétta átt fyrir mig. Að fáein- um mínútum liðnum renni ég mér ofan á veginn. Ég er kominn að húsi Linds. S*aslá 319. Ég er alveg ákveðinn. Ég skal skila bréfinu án þess að mín verði vart. .4 þann hátt kemst ég hjá forvitnum og nærgöngulum spurningum. Ég hafði líka lofað honum, sem bréfið sendi, að segja ekki nafn hans. 320. Ég kem inn í forstofu. Hvar eru nú Linds dyr? Beint fram. Gott! Nú er aðeins um að gera að smeygja bréfinu stillt og gætilega undir hurðina.-----En hvað er nú á ferðinni? 321. Einhver hefur séð bréfið! Hurðin er opnuð að innan í skyndi. Ég sprett upp og stilli mér teinbeinn upp að hurðarbaki. Maður kemur fram í glamp- andi ljósbirtuna innan úr stofunni. 322. Maðurinn litast um sem snöggv- ast, gengur síðan fram að útidyrunum og aflæsir þeim. En einmitt þar kom ég inn. Síðan tekur hann lykilinn og fer aftur inn til sín. 323. Þarna sit ég laglega í því! Lokað- ur inni í forstofu í ókunnugu húsi.------ Bara að ég finni nti einhverja aðra leið út.----Ég opna gætilega hurð til vinstri — og kem inn í svefnherbergi. 324. Þar liggur maður í rúmi inni við vegginn og hrýtur hátt. Ég læðist á tán- um inn að glugganum, en allt 1 einu vaknar maðurinn. Ég fel mig bak við gluggatjaldið.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.