Heima er bezt - 01.02.1979, Qupperneq 16
urðsson, báðir á Hólum, og ljósmóðirin Ólöf Jónsdóttir
Þinganesi." (Ólöf var amma barnsins, Árna, en hann var
sonur Eiríks Árnasonar og Þorbjargar Sigurðardóttur á
Þinganesi).
Rétt fyrir aldamótin 1800 fluttust þau Ari og Guðrún
frá Amanesi að Skálafelli í Suðursveit með tveimur son-
um sínum, Sigurði, f. 1778, og A rngrími, f. 1779. Sigurður
var síðar bóndi á Reynivöllum, en Arngrímur bóndi á
Skálafelli. „Báðir þóttu þeir aðsópsmiklir menn í sveit
sinni.“
Auk fyrrgreindra sona má telja afar líklegt, að Guðrún
og Ari hafi átt Gísla Arason, „uppvaxtarpilt frá Arnanesi,
12 ára,“ sem drukknaði af skipi ásamt Halldóri Ófeigssyni
bónda á Miðskeri hinn 7. júli 1784. Einnig gætu þau hafa
átt Helgu, sem dó 10 vikna 30. jan. 1785. Þegar þau Ari og
Guðrún fluttust að Skálafelli tóku þau með sér drenginn
Mensalder Raben, son séra Magnúsar Ólafssonar i
Bjamanesi og Rannveigar Jónsdóttur. Hann fæddist í
Amanesi, en ólst upp á Skálafelli. Heimili prestshjónanna
var mjög barnmargt. Afkomendum Sigurðar Arasonar
hafa verið gerð skil í Ættartölu úr Suðursveit eftir Auðun
H. Einarsson. Sjálfur hef ég tekið saman yfirlit um af-
komendur Arngríms Arasonar. í því er að finna öll börn
og barnabörn hans ásamt ýmsum fleiri afkomendum.
Ólöf Sigurðardótíir átti Eirik Eiríksson bónda í Holtum.
Um 1787 var Ólöf skráð ekkja á 3. býli Holta. Hjá henni
voru þá tvær yngstu dætur hennar. Hún var ekkja í
Slindurholti 1789 og þá eru þrjár dætur hennar tilgreind-
ar: Guðlaug, f. 1771; Guðbjörg, f. 1776; og Steinunn, f.
1778 eða '19.
Ólöf var í Slindurholti til 1800, en þá var hún í Flatey á
heimili Guðbjargar dóttur sinnar, líka 1802 í Hólmi og
eins 1816. Árið 1835 var hún skráð 92 ára niðursetningur
„frá Slindurholti að Öðrumgarði.“ Um dætur hennar má
nefna þetta:
Guðlaug var alla tíð ógift vinnukona. Árið 1806 var hún
skráð í Hólmi „sveitarómagi, 39 ára.“
Guðbjörg giftist Eiríki Guðbrandssyni árið 1798, en
hafði þangað til fylgt móður sinni. Eiríkur mun hafa verið
frá Bæ í Lóni, sennilega bróðir Sigríðar, sem bjó á Múla í
Hofssókn í Suður Álftafirði 1816. Eiríkur og Guðbjörg
bjuggu fyrst í Flatey, en síðan í Hólmi. Börn þeirra: Sig-
urður.Í. 1799, (árið 1816 var hann skráðursem innkominn
í Stafafellssókn frá Hólmi á Mýrum); Ólöf, f. 1800 (skráð
tökubarn í Holtum 1816); Una, U 1804, (1827 skráð
vinnukona frá Hólmi á Mýrum að Byggðarholti); Guð-
brandur, f. 1806. Hann kvæntist Guðnýju Brynjólfsdóttur,
f. um 1811, Eiríkssonar, á Bæ í Lóni. Guðbrandur var
bóndi i Bæ. Hann andaðist 22. 5. 1838. Kona hans eign-
aðist dóttur þeirra, Hallfríði, 3. 6. 1838, eða aðeins 12
dögum eftir andlát hans. Hallfríður dó í Þórisdal 23. 2.
1839. Guðný dó eftir 1861. Sigmundur Eiríksson, f. 1810;
Eiríkur, f. 1812, og Ari, {. 1815.
Steinunn Eiríksdóttir, Eiríkssonar, var framan af í fylgd
með móður sinni, svo á heimili Guðbjargar systur sinnar
(1799:„siðsöm og trúuð“) í Hólmi (á mannt. 1801). Árið
1808 var hún vinnukona í Einholti. Árin 1812-1813 bjó
hún með manni sínum Jóni Jónssyni í Krossbæjargerði.
52 Heima er bezt
Þau fluttu til Lambleiksstaða þar sem tveir synir þeirra
fæddust: Jón, f. 1813, og Eiríkur, f. 1814. Árið 1816 bjó
hún á Lambleiksstöðum með öðrum manni sínum, Bjarna
Jónssyni, f. á Hofi í öræfum 1788, Eiríkssonar. Þau
bjuggu síðan í Öðrumgarði frá 1828, en þar dó Steinunn
árið 1837. (Bjarni fluttist með 2. konu sinni Guðnýju
Guðmundsdóttir, f. 1798, að Viðborði).
Guðný Sigurðardóttir var fyrri kona Jóns Sigurðssonar,
f. 1740, bónda i Svínafelli í Nesjum. Börn þeirra, sem gætu
hafa verið fleiri, voru:
Sigurður, f. 1770; Kristín, f. 1771; Guðbjörg, f. 1772;
Sigríður, f. 1776; Kristín, f. 1777; Runólfur, f. 1778; en
yngsta barn þeirra var Jón, f. 5. 9. 1786.
Guðný Sigurðardóttir andaðist 12. okt. 1786 (grafin 15.
s.m.), „sú fyrsta hér í sókninni sálaðist úr bólunni þann 12.
þ. m„ hafði nýalið barn sem lifir.“
Áður en lengra er haldið má skjóta því hér inn í, að 9.
ágúst 1788 giftust Jón Sigurðsson, 48 ára, og hans seinni
kona, Anna Þorvaldsdóttir, 26 ára, frá Hafnarnesi. Þau
bjuggu á Meðalfelli og eignuðust mörg börn. Hið fyrsta
var dóttir sem fæddist 22. 7. 1790 og skírð var Guðný. Jón
andaðist 15. júlí 1800, „60 ára, tvígiftur, hafði átt 17 börn,
sálaðist úr yfirgangandi landfarsótt.“ Árið eftir, 6. sept.,
giftist svo ekkjan Anna Þorvaldsdóttir á Meðalfelli Guð-
mundi Kolbeinssyni, f. 1777, Jónssonar á Hafnarnesi. Þau
áttu ekki börn saman. Árið 1812 voru þau Anna og Kol-
beinn á Setbergi og tvö börn hennar. Hún andaðist úr
veikindum á Setbergi 23. maí 1813. Mjög margt fólk, ekki
síst börn, dó á þessum árum. Má t.d. árið 1807 sjá at-
hugasemdir eins og þessar í prestsþjónustubók, „sálaðist
úr yfirgangandi köldutaksótt“ eða „sálaðist úr brjóst-
þyngslum“. Verður nú aftur vikið að börnum Guðnýjar
Sigurðardóttur og Jóns Sigurðssonar:
Sigurður trúlofaðist 8. 10. 1798 Ólöfu Hannesdóttur, f.
1775 eða ‘77, að Meðalfelli. Árið 1816 var á Melrakkanesi
í Hofssókn í Álftafirði Ólöf Hannesdóttir, fædd á Meðal-
felli, húsmóðir, ekkja. Þar voru hjá henni tveir synir
hennar, Jón, f. 1807, og Runólfur, f. 1809, Sigurðssynir,
báðir fæddir á Bragðavöllum í Hálssókn við Hamarsfjörð.
Kristín (eldri) trúlofaðist 19. 11. 1798 Sigurði Einars-
syni, f. 1772, Jónssonar á Horni. Kristín hafði verið þarog
átt óskilgetin börn með Sigurði: hið annað 1795, hið
þriðja, Guðnýju, 1798, ogsíðan aftur 1799,/on, en þá voru
þau gift. Árið 1816 var á Kallstöðum í Berunessókn hús-
móðirin Kristín Jónsdóttir, ekkja, fædd í Svínafelli í
Nesjum 1771. Hjá henni eru tvö börn hennar, Jón Sig-
urðsson, fæddur á Horni 1799 (þar sem hann var hjá afa
sínum 1801) og Hróðný Sigurðardóttir, fædd á Steinaborg
í Berunessókn. Á sama tíma var fyrirvinna á Kallstöðum
Andrés Einarsson, fæddur á Horni 1776. Á Steinaborg var
1816 vinnukonan Guðný Sigurðardóttir, fædd á Horni
1798. Sama ár var Ólafur Sigurðsson vinnumaður á
Hærukollsnesi í Hofssókn í Álftafirði. Hann er sagður
jafngamall Guðnýju og gæti hann því verið sonur Ólafar
konu Sigurðar Jónssonar, en hann er sagður fæddur á
Horni í Nesjum og sá fæðingarstaður bendir til Kristínar.
Sigríður Jónsdóttir giftist 13. 9. 1801 Jóni Sigmundssyni
Framhald á bls. 65.