Æskan - 01.02.1969, Blaðsíða 43
HEIÐA — Framkaldíssaáa í myndúin.
121. ÞAÐ blæs ekki byrlega fyrir Sesemannsfjöiskyldunni í Frankfurt. Klara hefu. verið veik
allt sumarið, og læknirinn segir, að hún verði að hætta við förina til Heiðu. Klara cr í öngum
gg sínum: „Kæri læknir, getið þér þá ekki farið þangað sjálfur? Ég lofa því að taka eins mikið
gg lýsi og yður sýnist, bara ef þér farið.“ Gamli læknirinn sér tár í augum Klöru og heitir för-
inni. — 122. ÞÓ að Klara sé mjög sorgmædd að komast ekki sjálf til Heiðu, þá bætir það úr
skák, að læknirinn ætlar að fara með alla gjafapakkana til Heiðu. Og pakkarnir eru margir, því
að Klara hefur í Iangan tíma verið að útbúa sig. Fyrst skal telja hlýja kápu, sem Heiða á að
vera í, þegar hún heimsækir ömmu sína, sjal og stóra öskju með góðum kökum í handa ömmu.
Svo er það stór pylsa handa Pétri og móður hans og tóbak handa afa.
123. „GÓÐAN dag, afi, en sú blíða,“ hrópar Heiða og hleypur berfætt í döggvotu grasinu til afa,
sem stendur undir grenitrjánuni og horfir á sólarupprásina. Hann hlustar á þytinn í krónum
trjánna. „Hvað sé ég, ert þú svona árrisul? Viitu koma með mér inn í geitakofann og hjálpa
mér að kemba geitunum?" „Já, afi, má ég hjálpa þér að rnjólka?" Án þess að bíða eftir svari,
þýtur Heiða inn í gcitahúsið. — 124. NÚ er búið að mjólka geiturnar, kemba þeim og þvo, og
þá er kominn tími til að láta þær út. Grána er svo hænd að Heiðu, að hún hefur ekki frið fyrir
henni og verður að setja ofan í við hana. „Nei, Grána, þú stangar rétt eins og stóri Tyrkinn.“
Það sljákkar strax í Gránu, og hún verður háttvís aftur. Allt í einu kveður við hvellt flaut.
Hvað er nú um að vera?
!SSSoSSSoSSSSSSSoSSSSSóSS2oSSSSSSSo2SSS28SS28SSSS2S2SSSSSSSSoSSS8SS8o2S2SSSSS2SSSSSSSSS88SSS8S8S8
Fjárhagslega
borgið
Bræðurnir Barry, Mauricc og
Robin Gibb fengu fyrir nokkru
að vita, að fjárhagslega er
þeim fyllilega borgið i fram-
tíðinni. Þeir bafa grætt hver
um sig 144 milljónir króna á
þeim tveimur árum, sem þeir
hafa leikið saman í liljómsveit-
inni Bee Gees. Fyrir bræðurna
skiptir orðið milljónamæring-
ur ekki miklu máli. Þeir eiga
allir stór og góð einbýlishús,
skemmtislíútur og marga bila,
og nú nýlega keypti Maurice
Gibb sér þotu, sem liann er
að læra að stjórna. Bræðurnir
virðast taka vinsældunum með
mikilli ró, þótt þeir hafi mjög
gaman af því að vera „á toppn-
um“. Þeir bræður hafa nú í
liuga að flytjast til Los Angel-
cs, þar sem þeir ætla að stofna
kvikmyndafélag. Áður liöfðu
])eir eignazt hljómplötufyrir-
tæki, sem þeir græða vel á,
og auk þess eiga þeir margar
milljónir i ýmsum fyrirtækj-
um víðs vegar um heim, og
ætti þvi framtið þeirra að vera
tryggð.
ÆVINTÝRI
HERAKLESAR —
Framhald af bls. 98.
l'jálpa Heraklesi úr vandræð-
um hans og ætluðu þvi að ljá
honum þessi epli, en þegar
hann væri búinn ð sýna Evr-
ýsþevi konungi þau, yrði liann
a'v' skila þeim aftur. Atlas
hafði nú verið farinn að þreyt-
ast dálítið í herðunum á þvi
að standa þarna undir himn-
■num, og fannst það mundi
vera fyrirhafnarminna að láta
Herakles standa undir himn-
inum áfram, úr því hann gat
horið hann, og fara sjálfur
a burt. Hann gerði sig þvi lík-
tugan til að halda á burt með
eplin, en þá lirópaði Herakles
lil lians:
„Ef ]>að er fastráðin fyrir-
ætlun ])ín að fara á burt og
láta mig standa hér eftir, þá
hika ég ekki við að hlaupa
undan og láta hiiftininn skella
niður eins og verkast vill, og
þá verður þú drepinn.“
Atlas varð þvi að fara á sinn
stað og taka við himninum, en
Herakles tók eplin og sneri
aftur heim til Tirýns.
Evrýsþevs konungur var
bæði ragur og hviklyndur og
l>orði eltki að eiga eplin, sem
Herakles færði lionum, lieldur
krafðist hann þess nú af Hera-
klesi, að liann sendi þau aftur
Vesturdísum, og það gerði
Herakles.
SS88SSSS8S8SSS8SSSSSS88SS28SSSSSSSSSSSSSSSSSSSS8SSSSSS8S8SSSSSSSSS8S8SSSS88S88SSS8S8SSSZSSS8S8S8SSSSSSS8S8SSSSS8SSSSS8SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS8SS8SS8S8S8S8SSS8S888S
107