Æskan - 01.02.1969, Blaðsíða 3
hungursins.
Þessar myndir eru teknar í Biafra
en þaðan hafa borizt í allan vetur
hörmulegar fréttir af hungruðu fólki,
börnum og fullorðnum, sem deyja
þar tugþúsundum saman úr liungri.
Þeir sem hafa nægju sína að borða og
meira en það, geta varla ímyndað
sér, hvernig hungur er. Mikið hefur
verið gert til hjálpar, en það hrekk-
ur skammt.
Þegar fyrsta hjálpin barst, var
fjöldi barna orðinn svo aðframkom-
inn, að ekki var hægt að bjarga þeim
og þau hlutu að deyja.
Meðan styrjaldir, fáfræði og fátækt
hrjá heiminn, verður þetta aftur og
aftur hlutskipti barna einhvers stað-
ar á þessari jörð okkar, og oft er það
á mörgum stöðum í senn.
Talið er, að þriðjungur jarðarbúa
svelti eða fái aldrei nægju sína að
borða. Margar þjóðir lifa af svo ein-
hæfri fæðu, til dærnis surnar Asíu-
þjóðir, að ef uppskeran bregzt eitt
árið, verður hungursneyð.
Biafrabúar borða mikið skreið
(þurrkaðan og hertan fisk), sem þeir
kaupa frá Norðurlöndum, og í mörg
ár höfum við selt þeim mikið af
okkar framleiðslu. Nú þegar styrjöld
geisar í landi þeirra hafa þeir ekki
fjármagn til skreiðarkaupanna, svo
að hungurvofan gerir enn frekar vart
67