Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.05.1969, Qupperneq 28

Æskan - 01.05.1969, Qupperneq 28
SOQUn frá Qrcmlandi AT æri nú ekki tilvalið a3 fá að heyra dálítið af sögunum, sem ~ hún amma í Grænlandi segir litlu börnunum þar? Ykkur þætti víst skrítið að sjá hvernig farið er með börnin þar á meðan þau eru Iftil. ( staðinn fyrir það, að þið eru látin í lítinn vagn með rúmfötum og fallegri ábreiðu ofan á, og mamma, ykkar fer með ykkur út í góða veðrið og ekur ykkur út um allar götur, þá lætur mamma ( Grænlandi strákinn sinn eða stelpuna ofan ' poka, sem hún slengir svo á bakið á sér og ber með sér hvert sem hún fer. Á vetrum býr fólkið við sjávarsíðuna i lágkúrulegum moldarkofum, sem fennir oft í kaf, og þá þarf að moka löng göng til að komast út og inn. Þá veiða karlmennirnir sel upp um ísinn og stundum skjóta þeir ísbirni. Þegar vorið kemur og sólin fer að skína, þá tekur fólkið sig upp og ferðast með tjöld upp um fjöll og firnindi. Þá safnar það ósköpunum öllum af eggjum, Því allt er fullt af fugli. Svo veiða þeir fugl og skjóta hreindýr sér til matar og eru glaðir og ánægðir me£j Kfið. Þið hafið víst flest ykkar heyrt talað um heimskautafarann mikla. hann Knút Rasmussen. Hann fæddist í Grænlandi og var þar öH sín æskuár, og öll leiksystkinin hans voru grænlenzk. Þegar hann stálpaðist, fluttist hann með foreldrum sínum til Danmerkur, en alltaf elskaði hann æskustöðvarnar og þjóðina norður við heim- skautið framar öllu öðru. Eftir að hann komst til vits og ára, varði hann allri ævinni til þess að rannsaka heimskautalöndin og reyna að hjálpa fólkinu, sem þar býr. Hann lenti í ægilegum mannraun- um og varð oft að berjast langtímum saman við hungur og kulda og alls konar hættur. En aldrei barðist hann til að vinna öðrum mönnum mein, eins og hermenn gera, og þess vegna langar alla góða og dugandi drengi til að likjast honum. Hann skrifaði upP ósköpin öll af sögum og ævintýrum, sem grænlenzka fólkið unir sér við á kvöldvökunum, og þau hafa verið gefin út handa börnum í Danmörku. Þau eru mörg skrítin, og allt öðruvísi en sögurnar, sem þið eigið að venjast. Hérna fáið þið að heyra nokkur þeirra: ! 4K>4K>4K>4K4*>4k>4K>4K>4*>4<HÍK^^ Barnarœninginn Langt niðri á hafsbotni býr ógurleg ófreskja. Oft kemur hún upp á yfirborðið og inn á ströndina — þá mega börnin vara sig, því ef þau orga og láta illa þegar þau eru að leika sér, þá tekur hún þau. Einu sinni var stór krakkahópur að leika sér niðri í fjöru. Þau æptu hátt af kæti, svo undir tók f klettunum. Þetta heyrði ófreskj- an og læddist inn að ströndinni. Þegar börnin sáu til hennar, urðu þau yfirkomin af hræðslu og flýðu eins og fætur toguðu upp [ klettagjóturnar. En eitt barnið gat ekki flúið. Það var litill, foreldraiaus drengur, sem engan átti að. Hann var svo fétækur, að hann átti ekki einu sinni sóla undir skóna sína, og þess vegna gat hann ekki hlaupið eins hratt í grjótinu og hin börnin. Hann dróst fljótt afturúr og ófreskjan var alveg á hælunum á honum. En þá datt snáða ráð í hug: Hann fleygði sér niður og sparkaði út í loftið með fótunum, og allar tærnar stóðu út úr skónum. Ókindin var nú komin fast að honum, og ætlaði að grípa hann á lofti, en hann gerði sér lítið íyrir, rak framan í hana aðra stórutána og hróp- aði: „Varaðu þig á stórutánni, hún étur menn.“ Þá varð ófreskjan svo hrædd að hún flýtti sér i dauðans ofboði langt út á haf, en drengurinn hljóp heim eins hratt og hann gat. Mennirnir tveÍT Einu sinni voru tveir menn á veiðurn- Annar þeirra veiddi úlf í gildru, en hinh skaut hreindýr með boga. Þegar þeir hiK' ust, sagði annar: „Ljómandi er þetta fallegur hreindýrs- feldur, sem þú hefur þarna". ,,En úlfshamurinn þinn, sá er nú ekki slorlegur,“ sagði hinn. Svo fóru þeir að spjalla saman um þessi tvö skinn, bæði um háralagið og hitt 00 þetta. „Hreindýrið hefur fleiri hár á skrokknun'1 heldur en úlfurinn," sagði annar. 264

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.