Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1969, Page 43

Æskan - 01.05.1969, Page 43
Iþróttir Sigurður Helgason: Körfu- knattleikur Körfuknaitleikurinn er fundinn upp ár- ið 1891 í Bandarikjunum. Það var maður að nafni James Naismith, sem það gerði. Hann var þá iþróttakennari við skóla þar í landi, og var beðinn um að gera eittlivað fyrir aðgerðalausa nemendur skólans um vetur. Hann settist niður og byrjaði að vinna að málinu, og útkoman varð knattleikur, sem hann í fyrstu vissi ekki hvað kalla skyldi. En það rættist úr þvi þegar liann hengdi körfurnar upp í fyrsta sinn, hann kallaði leikinn bara körfuknattleik, og það nafn hefur haldizt siðan á leiknum. Körfuknattleikurinn náði strax ótrúlegri útbreiðslu. Á aðeins 10 ár- um barst leikurinn til allra heimsálfanna °g með árunum til æ fleiri landa. Til Evrópu barst leikurinn fyrst til Þýzka- lands 1896 og Hollands 1903, en það var ekki fyrr en 1919, sem körfuknattleikur- inn varð viðurkennd íþróttagrein í Evr- ópu. Frá Danmörku og Bandaríkjunum niun leikurinn hafa borizt til ísiands. Fyrst i stað æfðu einstakir skólar leilc- ■nn, en smátt og smátt eru stofnaðar deildir við hin ýmsu íþróttafélög út um land, og að lokum voru hér það mörg fé- lög, að liægt var að efna til móta. Fyrsta íslandsmótið var haldið órið 1952, og sig- urvegari þá varð íþróttafélag Keflavik- Urflugvallar. 1957 var fyrsta Reykjavíkur- mótið lialdið. Körfuknattleikssamhand ís- lands var stofnað 31. janúar 1961, og hef- ur það síðan annazt öll málefni körfu- knattleiksmanna, en þau liöfðu áður ver- ið í höndum ÍSÍ. Fyrsti landsleikur ís- lands i körfuknattleik var liáður í maí- mánuði 1959 við Dani, sem sigruðu 41:38. Síðan liefur landsliðið íslenzka leikið 23 landsleiki, unnið 11, en tapað 12. Einnig hefur unglingalandsliðið leikið 4 lands- leiki og unnið 2. Undirstööuatriði Eins og við allar iþróttir er lielzla und- irstöðuatriði körfuknattleilcs úthaldið. Ef það er ekki fyrir hendi, þá næst enginn árangur. En körfulsnattleikurinn er hrað- ur leikur, sem krefst töluverðrar mýkt- ar, snerpu og fimi. Réttar fótahreyfingar, handleggirnir, og þar á ég sérstaklega við fingurgómana og úlnliðina, skipta meginmáli við framkvæmd knattgjafa, knattreks og skota, eins og fram kemur í köflunum hér á eftir. Rétt framkvæmd og rétt notkun þessara iikamshluta er undirstaða þess, að hægt sé að verða góð- ur körfuknattleiksmaður. Svo er auðvitað, eins og i fleiri liópiþróttum, svo sem t. d. handknattleik og knattspyrnu, eklci að- eins nauðsynlegt að vera góður einstak- Oscar Robertson. lingur, lieldur verður einnig að æfa liðið saman sem eina heild, og takist það vel, þá fyrst er hægt að vera ánægður með árangur alls þess erfiðis, sem á sig liefur verið lagt í sambandi við æfingar körfu- lcnattleiksins. Myndin, sem fylgir þessum þætti, er af einum hezta körfuknattleiksmanni heims- ins í dag, Bandaríkjamanninum Robert- son. Fleiri myndir af honuin munu birt- ast með næsta kennsluþætti, sem verður um körfuskot, knattgjafir og fleira. Gunnar Gunnarsson. Koma seglskipin á ný? I síðasta hefti Sjómannablaðsins Víkings er þeirri spurningu varpað fram, hvort seglskipin komi á ný og verði keppinautar vélknúinna flutn- ingaskipa um heimshöfin. Vindurinn er elzta orkan, sem notuð var til að knýja skip, sem fóru umhverfis hnöttinn með sæ- garpa og landkönnuði. Vindurinn er kenjótt nátt- úrufyrirbæri en orka hans fæst fyrir ekki neitt! Wilhelm Prölss, aldraður verkfræðingur í Ham- borg, hefur um langt skeið glímt við spurningu þá, hvort segiskip geti á ný rutt sér til rúms. Hann telur að svo geti farið og hefur lagt fram hug- myndir sínar og teikningar að seglskipum fram- tíðarinnar. Nú mun skipasmíðastöð ein vera að semja við hann um smíði 1700 tonna seglskips til vöruflutninga og á það að verða sex mastra. Hvert mastur 60 m hátt. I þeim eru geymslur fyrir segl- in. Úr stýrishúsi er hægt að aka seglum eftir vindi með fjarstýringu, svo ekki þarf að klifra í rá eða reiða, eins og á gömlu seglskipunum. Ganghraði á að geta orðið mjög mikill og skipið fer betur í sjó en vélknúnu skipin. En á síðari árum hefur veðurfræði og önnur visindi gert mögu- legt fyrir seglskip að sigla langleiðir f góðum byr, þar sem sérstök veðurbelti eru kunn og veðurspár þýðingarmiklar. 279

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.