Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.05.1969, Qupperneq 44

Æskan - 01.05.1969, Qupperneq 44
ypurninfyar oc^ ói/or Islenzkir þjóðbúningar Mikill áhugi er hjá ungum stúlkum á því að koma sér upp islenzkum þjóðbúningum, og hafa nokkur hréf horizt um það efni. — Eftir því, sem við höfum komizt næst, mun uppliiuturinn kosta á að gizka frá tæplega tólf þúsund krón- um, þegar hann er úr satíni, upp í tæplega tuttugu þúsund krónur, þegar hann er úr uil og silki, þá með dýrasta silf- urhólk og nælu, 5 stórum droppum á belti, ermatinöpp- um og húfuprjónum, en bald- ýruðum borðum. Peysuföt eru mun ódýrari. Þau kosta frá rúmum fimm þúsundum kr., þá úr satíni, upp í tíu þúsund krónur, þá úr ull og silki, og eru þau með húfuprjónum, dýrustu gerð af silfurhólki, nælu og svuntupörum, en eklti er þá gert ráð fyrir belti með peysufötunum. Auðvitað verð- ur búningurinn ódýrari, el' konur sauma liann sjálfar. Aðalhlutar nútíma uppliluts eru þessir: Skottliúfa með skúf, skúfhólki og húfuprjón- um (en þeir síðasttöldu eru ekki nauðsynlegir), skyrta með ermahnöppum, upphlutur með millum, reim (festi), millunál, borðum og leggingum, pils, og belti eru svört að undan- skilinni skreytingu á upphlut, en hún er ýmist gyllt eða silf- urlit. Skyrta og svunta eru með ýmsum litum. Svartir sokkar og skór eru liafðir við búninginn. Kvensilfur er ýmist gyllt eða iivítt, sliúfhólkur er stundum úr gulli, en er afar sjaldgæft, að hann sé smíðað- ur úr svo dýrum málmi. Ung- ar stúiltur, sem ætla að koma sér upp búningi, geta undir- húið J)að með ])ví að biðja um einstaka hluta hans í jóla- eða afmælisgjöf, og hafa eflaust margar gert það. 280

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.