Æskan

Volume

Æskan - 01.03.1970, Page 42

Æskan - 01.03.1970, Page 42
SKÁTAOPNAN Ritstjórn: HREFNA TYNES Hvað þarf ég að gera til þess að verða SKÁTI? í þessari opnu mun ég segja ykkur Irá Ijósálfastarfi, og á hvaða grundvelli það er byggt. í stuttu máli er það þrennt, sem um er að ræða, eða eins og kemur fram í loforði og lögum, en það er: Hjálpsemi, hlýðni og úthald — gefast ekki upp. Sagan, sem upphaflega var lögð til grundvallar Ijósálfastarfinu, er samin eftir skozkri þjóðsögu. Sag- an, 3em heitir Ljósálfarnir, er eftir Juliane H. Ewing, en íslenzk- uð af Kristmundi Bjarnasyni. Hún mun nú vera lítt fáanleg, en reynandi er að spyrja um hana f Skátabúðinni. Sögupersónur eru tvö lítil systkini, María og Tumi, sem eru baldin og löt eins og gerist og gengur, en amma þeirra segir þeim frá gömlu, vitru uglunni í skóginum, og hún segir þeim einnig írá Ijósálf- María sagði: ,,Ég sé engan nema sjálfa mig." ,,Já," sagði uglan, ,,það eru nú einmitt þú og hann bróðir þinn, sem eigið að vera Ijósálfarnir á heimilinu, farðu nú heim og byrjaðu strax i dag og fáðu hann bróður þinn með þér.‘‘ Svo gaf uglan henni mörg góð ráð, þetta yrði mjög spennandi leikur, ef þau færu rétt að. Eftir miklar vangaveltur fóru svo börnin að hefja þetta fyrsta Ijósálfastarf sitt. Pabbi þeirra varð svo undrandi. ,,Hver var allt f einu farinn að taka til í eldhúsinu? Hver bar inn eldivið? Hver hreinsaði gólfið og tók saman alla afgangana hans? (hann var klæðskeri) Og hver gerði þetta og hver gerði hitt? Jæja, allt komst upp um síðir, en þá var allt orðið svo skemmtilegt, aldrei skammazt, aldrei suðað eða rifizt, allir voru allt f einu orðnir svo glaðir. — Þetta var nú uppistaðan I Ijósálfasögunni. Ljósálfarnir taka ýmis ,,próf“, fyrst auðvitað Ijósálfaprófið, sem er nokkurs konar inntökupróf. Þá mega þær bera búning. Svo er I. stjarna og II. stjarna og síðan alls konar sérpróf. Ég nefni örfá dæmi: Kunna loforð, lög og kjörorð, kveðjur, Ijósálfasöguna (síns eigin lands — hvert land getur haft sína sérstöku sögu). Svo læra þær um fánann, þjóðsönginn, Ijósálfasönginn, ýmsar heilbrigðisvenjur, hreinsa smáskeinur og láta á þær plástur, þekkja nokkrar blóma-, dýra- og trjátegundir, kunna að leggja á borð og þvo upp matarílát, kunna aðalumferðarreglur gang- andi manna, föndur o. m. fl. Mikið er notað af sögum, söngvum og leikjum í Ijósálfastarfi. Hér er einn slíkur leikur: Að rífa út hlut eftir upphafsstaf Hver hópur fær eitt eða fleiri dagblöð til afnota. Foringinn nefnir einhvern bókstaf. Þá eiga allir að rífa út úr einni blaðsíðu (hver krakki fær eina blaðsíðu) einhvern hlut, dýr, fugl eða annað, sem byrjar á nefndum bókstaf. T. d. B. — bolti-bíll-blóm- bjalla-buxur o. s. frv. Sá vinnur, sem fyrstur er. unum, sem hjálpuðu fólkinu í gamla daga, en ætíð svo, að enginn sá þá, en allir vissu af þeim. Þeir þreyttust aldrei á að gera mönnum greiða, og öllum þótti þar af leiðandi vænt um þá. María og Tumi voru ákaflega glöð, þegar þau heyrðu þetta, nú væri vandinn leystur, nú þyrfti ekki pabbi þeirra að ergja sig yfir því, þótt þau væru löt og hirðulaus, nú værl bara hægt að kalla á Ijósálfana og láta þá gera verkin og taka til, systkinin gætu haldiá uppteknum hætti — verið löt og óhlýðin. Þetta var nú ekki alveg svona einfalt. Amma sagði, að gamla uglan kynni ráð við þessu, og María hélt á fund uglunnar og bað hana að finna fyrir þau Ijósálfa til að hjálpa til við heimilis- störfin. Gamla vitra uglan sagði, að það væru Ijósálfar heima hjá þeim, þeim væri engin vorkunn að hjálpa til. María varð alveg undrandi, hún hélt sig nú þekkja alla á heimilin'u. Uglan sagðist þá skyldu sýna henni annan Ijósálfinn og sagði henni að beygja sig og horfa niður f tjörnina, sem hún stóð hjá.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.