Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1970, Side 8

Æskan - 01.07.1970, Side 8
c------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------ Andrés hafði einskis óskað sér fremur en þess að eiga vasahnif, vegna þess að drengir, sem eiga svona hnífa, eru í einu vetfangi teknir ! fullorðinna manna tölu. Samt gat hann ekki hugsað sér að láta þessa fallegu, nýju húfu frá sér. ,,Mér þykir það mjög leitt,“ sagði hann og hélt leiðar sinnar. Við fyrstu gatnamótin mætti hann gamalli konu. „Mikið áttu fallega húfu," kallaði hún hrifin og klappaði saman höndunum af hrifningu. ,,Þú ert svo fínn með þessa húfu, að þú gætir farið á dansleik f konungshöllinni." ,,Já, til þess langar mig,“ sagði Andrés. Hann hélt, að marga langaði til að sjá fallegu húfuna hans. Síðan tók hann mjög kurteislega ofan fyrir gömlu konunni og flýtti sér í átt til konungshallarinnar. Tveir hermenn stóðu fyrir framan hallarhliðið og stöðv- uðu ferð hans. „Hvert ætlar þú?“ spurðu þeir. „Ég ætla á dansleikinn hjá kónginum," svaraði Andrés og var hinn hreyknasti. „Þú færð ekki inngöngu, nema þú sért í einkennisbún- ingi," sögðu herrnennirnir. Andrés svaraði: „Ég hef hugsað mér að nota nýju húf- Nýja húfan hans cAndré^r itt sinn var Iftill drengur, sem hét Andrés. Dag nokkurn gaf móðir hans honum góða gjöf. Það var húfa, sem hún hafði sjálf saumað. Andrési virtist þetta vera fallegasta húfan, sem hann hefði nokkru sinni eignazt, og þar fór hann vissulega nærri sannleikanum. Þetta var mjög falleg húfa, rauð með blátt mynztur ofan á kollinum og grænan skúf. Andrés setti hana á sig, og foreldrum hans virtist hún klæða hann alveg prýðilega. Systkini hans fengu einnig að sjá hana, skoðuðu hana í krók og kring og voru sammála um, að húfan væri afar falleg. Nú gekk hann hreykinn út á götu með hendurnar i buxnavösunum og húfuna á höfðinu, til þess að allir gætu virt hana fyrir sér. Fyrst mætti hann bónda, sem var á leið til sölutorgsins með hlaðinn vagn af vörum. Bóndinn stanzaði og hneigði sig djúpt, þegar hann sá Andrés með nýju húfuna. Andrés hneigði sig á móti og gekk áfram háleitur af stolti yfir því, að bóndinn hafði dáðst svo mjög að nýju húfunni hans. Næst mætti hann dreng, sem átti heima neðar í götunni. Þetta var stór strákur I háum stigvélum og hafði fallegan vasahnif I hendinni. En þegar snáði sá, hvar Andrés kom gangandi eftir götunni með þessa fallegu húfu á höfðinu, stanzaði hann og starði á húfuna. „Þú skalt fá vasahnffinn minn, ef þú lætur mig fá nýju húfuna þlna," sagði hann. *---------------------------------------------------------------....... ................. .................... , J una, sem mamma saumaði mér. Hún er sfzt verri en ein- hver einkennisbúningur." Hermennirnir fóru nú að gefa húfunni nánari gætur. Þeir ræddu um hana sin á milli og urðu ásáttir um, að í raun- inni hefði Andrés rétt fyrir sér. Síðan var hliðið opnað og 344

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.