Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1970, Blaðsíða 10

Æskan - 01.07.1970, Blaðsíða 10
húíuna sína. Hann tók ekki eftir því, að hann missti súkku- laðið, konfektið og hálsmenið á leiðinni. Hann hljóp heim í einum spretti. Foreldrar hans og systkini þutu til hans, þegar hann kom másandi inn um dyrnar með hendurnar klemmdar utan um húfuna. Hann sagði þeim frá öllu, sem gerðist, — frá öllum, sem hann mætti á leiðinni, dáðust að nýju, rauðu húfunni hans og vildu eiga hana. Svo sagði hann mömmu frá kóng- inum, sem vildi láta hann hafa kórónuna i stað húfunnar, og þá hrópuðu systkini hans öll í einu: „Voðalega varstu heimskur, Andrés. Hugsaðu þér alla fallegu hlutina, sem þú hefðir getað eignazt, ef þú hefðir orðið kóngur. : ú hefðir getað eignazt hástígvél, vasahnífa og eins margar rauðar húfur og þú hefðir kært þig um.“ Þá varð Andrés ákveðinn á svip og sagði: ,,Ég var ekki heimskur. Ekkert í allri veröldinni jafnast á við rauðu húf- una, sem hún mamma saumaði mér.“ Þegar móðir hans heyrði þetta, tók hún Andrés í fang sér og kyssti hann blítt og innilega. MARGT BYR I SJONUM fyrri hiuta 17. aldar bjó maður sa í Stokkseyrarhverfi, er Jón hét. Hann var ákaflega harðger og sterkur vel, en fátækur var hann, og var hann því vanur að ganga á reka til þess að vita hvort hann fyndi ekki eitthvað, er gagn væri að. — Einu sinni gekk Jón á reka sem oftar, en fann þá ekki annað en kefli eitt lítið. Þá er Jón hélt af stað heimleiðis, var tekið að skyggja. Hann sá þá eitthvað liggja í fjörunni rétt hjá sér og kom honum fyrst til hugar að þetta væri dauð kind. Jón fór að svipast betur eftir þessu, en þegar hann var rétt kominn að hrúgunni, sá hann, að þetta gat ekki verið kind, því að bæði var það nokkuð stærra og svo ólíkt kind í sköpulagi. — Hausinn var ákaf- lega stór, og eyrun voru svo síð og lafandi, að þau tóku niður íyrir hausinn. — Skepna þessi var lík tryppi að stærð, en fæturnir voru svo lágir, að Jón sá óglöggt, hvort þeir voru nokkrir eða engir. Dýr þetta var allt þakið skeljum að utan og glamraði í þvf, eins og þá er gengið er á þurrum skeljum, en í augun glóði eins og í glyrnurnar á ketti. — Jóni þótti nú komið í óvænt efni um ráð sitt, þar sem hann var kominn að voðalegu skrímsli, og bjóst hann við að það mundi drepa sig þá og þegar. — Skrímslið réðst líka á hann, en Jón lét keflið ríða á því af öllu afli og gat hann varið sig lengi á þennan hátt. Ekki var samt neirin bilbug finna á skrímslinu, og voru það þó ómjúk högg, er Jón greiddi því. Eftir langa viðureign tók skrímslið heldur að linast og að hrista hausinn, því að húð öll var gengin af honum. Þó sótti það enn að Jóni, en hapn lamdi það í sífellu, þangað til það stökk á burt og fram í sjó; var Jón þá kominn að þrotum og svo móður, að hann lagðist fyrir, þar sem hann var kominn, og lá þar til þess er dagaði; skreiddist hann þá á fætur með veikum burðum og hélt heim, en þegar þar var komið, lagðist Jón í rúmið og lá lengi rúmfastur á eftir. — Ekki vildi Jón segja frá þvi í bráðina, hvað fyrir hann hafði borið, en ioksins gat kona hans þó haft það upp úr honum og breiddist sagan út eftir það. — (Eftir handriti Lárusar Halldórssonar írá Miðhraurii í Dalasýslu 1898. — Sögur úr Flóa. Þjóðsögur Ólafs Davíðssonar). JÓN á Stokkseyri og sjóskrímslið 346
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.