Æskan - 01.07.1970, Blaðsíða 32
Frá vinstri: USA, ísland, USA, Kína, ísland og Barbados.
kenna föndur bæði til gagns og gleði. Þetta verkefni hafði einna
mest áhrif á okkur, því slíka fátækt höfðum við aldrei komizt í
kynni við.
Tvo sunnudaga var opið hús. í fyrra skiptið komu skátar frá
Mexíkóborg í heimsókn, en hinn síðari komu sendiherrar hinna
ýmsu landa og fjölskyldur þær, sem við höíðum búið hjá. Við
sýndum muni og myndir frá íslandi, og fólk spurði okkur spjör-
unum úr um þessa eyju norður í Atlantshali, en þegar það ','ann
lyktina af harðfiski, greip það fyrir nefið. Allar stúlkurnar voru í
þjóðbúningi síns lands. (slenzki upphluturinn vakti mikla hriln-
ingu. Dansaðir voru þjóðdansar. Við dönsuðum vikivakaspor við
„Fyrr var oft í koti kátt", en það höíðum við sungið inn á segul-
band.
Mörg ferðálög voru farin frá heimilinu. Eftirminnilegustu ferð-
irnar voru til Mexíkóborgar, þar sem við skoðuðum þjóðminja-
safn Mexíkana, rápuðum um borgina 5—6 saman í hóp og fórum
í búðir og á markaði. Um kvöldið fengum við að sjá þjóðarballett
Mexíkana, og var það ógleymanleg sjón. Hina ferðina fórum við
til Taxco, lítils þorps, sem er frægt íyrir silfur sitt. Þar léttist
pyngjan töluvert, enda þótt silfrið hafi verið ódýrt. Margar smá-
ferðir voru einnig farnar bæði til skemmtunar og fróðleiks.
Á þessum dásamlega stað eignuðumst við marga góða vini,
meðal annars hittum við forstöðukonu San Gam heimilisins.
Allt tekur endi. Þegar komið var að kveðjustund, reyndist
mörgum erfitt að halda aftur af tárunum, því sárt var að kveðja
góða vini. Okkur var það smáhuggun, að ekki þurftu allir að
kveðjast, þvf hver bandarísk stúlka tók eina erlenda heim með
sér.
I Bandaríkjunum vorum við á yndisiegum heimilum í mánuð,
önnur f Indiana en hin í lllinois. Mörg skátamót og skátabúðir
heimsóttum við og kynntumst þannig skátastarfinu þar og eign-
uðumst enn fleiri vini. Og aftur kom að skilnaðarstund. Tíminn
hafði flogið áfram og kominn tími til að fara heim.
Ekki voru þó öll ævintýri úti, því ferðalagið heim tók okkur
einn sólarhring. Eftir klukkustundar flug heim á leið frá New York
bilaði flugvélin og var henni snúið við. I þrjár stundir biðum við
á ílugvellinum á meðan farangurinn var fluttur yfir í aðra vél.
Er við lítum til baka til þessarar ógleymanlegu ferðar, óskum
við þess eins, að íleiri íslenzkir skátar fái sams konar tækifæri.
Beztu þakkir til þeirra, sem stuðluðu að þessari velheppnuðu
ferð.
Kristjana Fenger ,,Kópum“
Ingibjörg Ólafsdóttir „Dalbúum".
Þegar maður er í útilegu, er
gott að þurfa ekki að elda i
mörgum pottum, iiefdur hafa
„cins-potts-rétt“ eða „einnar-
pönnu-rétt“ svokailaðan. I>að
getur verið verkefni ærið nóg
að finna upp slíka rétti, og
ga-tu flokkarnir, sem finna upp
réttinn, nefnt hann sínu nafni
(hann innihéldi ])á flokks-
nafnið um leið), t. d. „Fiðrilda-
súpa“, „Pilsvarga-kássa“,
„Sendlingasúpa“ o. s. frv.
Hérna kemur þá uppskrift af
einum slíkum rétti:
Bitasúpa
1 kg súpukjöt
1- 2 gulrófur
2- 4 gulrætur
% hvítkálshöfuð
3- 4 stórar kartöflur
súpujurtir, ef vill
% bolla af hrfsgrjónum
Kjötið þvegið vel, soðið til
liálfs, tekið upp úr og skorið i
smáhita (munnbita) grænmet-
ið jivegið og skorið i smábita,
soðið síað og potturinn hreins-
aður, síðan allt látið í pottinn
ásamt súpujurtum og ef til vill
% holla af hrisgrjónum, vatni
bætt i pottinn, svo rétturinn
verði mátulega þykkur (þetta
á ekki að vera þunn súpa),
gleymið ekki að salta. Borðist
með skeið, gott að hafa brauð-
sneið með.
Þetta er góður réttur í úti-
legu, og hitar manni vel, ef
kalt er úti.
„Einnar-pönnu-réttur“
Skerið beikon eða kjötafgang
i smáhita, velgið upp í feiti á
pönnu, kaldar kartöflur skorn-
ar í smábita, afgangur af græn-
um baunum, ef til er, eða inni-
hald úr dós (eltki safinn). Allt
látið á pönnuna, gleymið samt
ekki að láta fyrst feiti á pönn-
una. Siðan hrærið ])ið saman
egg (eftir því hvað ])ið eruð
mörg, 2—3 eða fleiri), getið
l)rært saman við þau 1—2 mat-
skeiðum af hveiti og örlitlu
salti, og 2—3 msk. af mjólk
svona til að drýgja í eggjun-
um. Heliið þessari hræru yfir
það, sem er á pönnunni, og
steikið við vægan hita, látið
lok ofan á pönnuna.
Margt fleira er liægt að hafa,
en það geta flokkarnir spreytt
sig á.
368