Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1970, Side 21

Æskan - 01.07.1970, Side 21
Öllum hugsandi mönnum er nú Ijóst, að áfengi og akstur farartækja á ekki saman. En hefurðu nokkurn tíma hugsað um, að það eru þrisvar sinnum meiri líkur til þess, að ökumaður verði fyrir slysi, ef vínanda- magn f blóði hans er 0,3 af þúsundi, — en það er undir því marki, sem umferðar- lögin setja, — heldur en sá, sem er alls- gáður. Og sé vínandamagn blóðsins 1,7 af þúsundi, eru líkurnar 60 sinnum meiri fyrir því, að ökumaður verði fyrir slysi. Það er staðreynd, að áfengið sljóvgar hömlurnar og lengir viðbragðstímann. Og þar finnst skýringin á því, að ölvaðir menn eru svo hættulegir I umferðinni sem raun ber vitni, — bæði sjálfum sér og öðrum vegfarendum. Hvar er eigandi hestsins? FELUMYND Finnið þið dýrin þrjú, sem hafa leit- að skjóls í trénu? 26. Sveskjusteinarnir Einu sinni fékk Lóa að fara með mömmu sinni og einni systur sinni í kaupstaðinn. I>ær komu þar í búð til kaupmannsins, sent þau verzluðu við. Sáu systurnar þar margt nýstárlegt, sem þær voru mjög hrifnar af. Á eftir var þeim öllum boðið inn í stofu til kaupmannsfrúar- innar. Fengu þær kaffi og með því. Dyrnar frarn í eldhúsið voru opnar, og fór frúin fram, þegar þær höfðu drukkið, og hélt áfram að taka steina innan úr sveskj- unum, en hún hafði verið að því, þegar þær komu. Telpurnar horfðu á hana, hvernig hún fór að þessu. Allt í einu dettur konunni í hug, að þær langi í Jtetta, sem hún var með, og gengur til Jieirra og réttir þcim sína handfyllina hvorri af sveskjusteinum. Lóu og systur hennar fannst Jtetta skrítið, J>ví Jtær hafði ekki langað í steinana að minnsta kosti. 27. Lóa verður ráðskona Vetur einn, Jjegar Lóa var 14 ára, geisaði pest um byggðina. Fólkið í Skógum frétti af Jtví, að á næsta bæ lægi allt fólkið veikt, og væri enginn til að hjúkra Jdví. Þar bjuggu hjón með nokkur börn. Þegar Þórunn, móðir Lóu, heyrði Jjessar fréttir, vorkenndi hún svo veslings fólkinu, sent lá fárveikt og hjálparlaust, að hún ákvað að fara Jjangað og hjálpa Jjví. Þetta var mikil áhætta fyrir hana, Jjví að hún gat átt á hættu að veikjast líka, en hún mátti illa missa sig frá barnahópnum sínum. En henni fannst Jjað skylda sín að hjálpa nauðstöddu fólkinu og treysti guði, að henni myndi lánast Jjetta vel og ekki hel'nast fyrir að gera Jjetta góðverk. Setti hún Lóu yfir heimilið, fékk samjjykki manns síns til að fara og lagði af stað. Hún dvaldist á Jjessu heimili í þrjár vikur og hjúkraði fólkinu og hirti um skepnurnar, Jjangað til nokkuð af heimilisfólkinu komst á fætur. Fór lnín Jjá lieim aftur. Fkki varð henni meint við Jjetta. Á meðan mamma hennar var í burtu, hugsaði Lóa urn heim- ilið og vann öll verk mömmu sinnar auk sinna eigin, auðvitað með hjálp yngri systra sinna, Htddu og Dóru. Allt gekk vel og var mamma hennar allshugar giöð og fegin, Jjegar hún kom heim, að finna heimilið sitt í ágætu lagi og börnin öll frísk. 357

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.