Æskan - 01.07.1970, Qupperneq 39
Á l>essum degi varð ævintýraósk liennar
að veruleika: draumurinn um afi verða
stjarna. Aldrei hafði henni tekizt að kom-
ast á vinsældalistann heima á Irlandi.
Rosemary Brown, nefnd Dana af vinum,
hafði sungið inn á þrjár plötur seinasta
‘2V2 ár. Engin þeirra varð vinsæl. Dana var
alltaf óþekkt. Faðir hennar, sem er hár-
greiðslumeistari í Londonderry á Norður-
frlandi, sagði alltaf: „Syngdu ekki dægur-
lög, taktu þín próf í tónlist og ensku. I>ú
verður líka hamingjusöm l>ólt þú komist
ekki á vinsældalista.“ Hann talaði fyrir
daufum evrum.
Eftir sigurinn í Amsterdam mun margt
breytast i lífi Rosemary Brown. Hljóm-
leikaferð um Evrópu er i vændum og
margir sjónvarpsþættir. Fyrsta kvik-
myndatilboðið hefur hún þegar fengið.
Sú spurning vaknar eftir sigur þessarar
fallegu stúlku, hvort dægurlagahljómlist
litist af stil hennar og vcrði rómantískari
03 blíðari en undanfarin ár.
Lee Marvin fæddist árið 1!)‘24 i New
York. Hann var snemma uppreisnargjarn,
og fjögurra ára gamall strauk hann fvrst
að heiman. Hann náðist þó fljótlega og
var nú sendur að heiman í hvern heima-
vistarskólann á fætur öðrum, en var oft-
ast rekinn eftir skamman tíma af ýmsum
ástæðum eitt sinn fleygði hann I. d.
Lee Marvin sem Ben Rumson i söngva
myndinni nýju l*aint Your Wagon.
Sem Kid Shelleen í Cat Ballou, sem sýnd
var i Stjörnubiói fyrir nokkrum árum.
skólabróður sinum út um glugga á ann-
arri hæð! I'egar hann hafði aldur til, hætti
hann í skóla og gekk i landgöngusveitir
flotans 1942 og barðist á Kvrrahafssvæð-
inu. I>ar gekk svo mikið á, að lionum
fannst nög um, og þar særðist hann svo
illa, að hann lá á sjúkrahúsi i 13 mánuði.
Fyrir frammistöðuna fékk hann heiðurs-
merki.
Er heim til Bandarikjanna kom, flækt-
ist hann úr einu starlinu i annað, þar til
hann fór loks að læra pipulagningar. Eitt
sinn var hann að grafa fyrir rotþró ekki
langt frá litlu leikhúsi í Woodstock í New
York. Hann leitaði fyrir sér af rælni, hvort
ekki vantaði leikara og fékk litið hlutverk
og hætti l>á með öllu við pípulagnirnar.
Heldur gekk leikstarfsemin skrvkkjótt, en
þó komst hann i samband við sjónvarpið
og lék i um 200 sjónvarpsþáttum án þess
að hafa nema rétt til hnifs og skeiðar.
Svo rak að þvi, að hann féklt smáhlut-
Sem majór Reisman i The IMrty Dozen,
sem Gamla Bíó sýndi ekki alls fyrir löngu.
verk i kvikmynd, og síðan lék hann árum
saman úrþvætti og glæpamenn og virtist
hvorki ganga né reka. Loks kom að þvi
eftir glæpamannahlutverk i 40 kvikmynd-
um, að lutnn lék Kid Shelleen — drykk-
felldan byssubófa með gott lijartalag —
í myndinni Cat Ballou, sem sýnd var hér
fvrir nokkru. Sú mynd varð mjög vinsæl,
og hann hlaut Oskarsverðlaunin fyrir leik
sinn — þótt Marvin segði raunar sjálfur,
að hestur hans hefði átt að fá hehninginn
af verðlaununum.
I>á urðu mikil umskipti í lífi Marvins.
I'yrir leik sinn i Cat Ballou fékk hann 87
þúsund dollara — sem eru smámunir á
mælikvarða kviluny ndast jarnanna -— en
eftir það var honum boðin ein milljón
dollara fyrir hverja tnynd, og auk þess
hefur liann miklu hetri tök á þvi en áður
að velja hlutverk sín og getur þá lcikið i
betri myndum en iiann hefur orðið að
gera lengst af ævinnar.
Næsta mynd Hiteheoeks mun vera byggð
á sögunni „A Short Night“ (Skammvinn
nótt) eftir Ronald Kirkbridge. Rvrja átti
að kvikmynda útisenur i Finnlandi i júni.
Fvrir leik sinn í kvikmyndinni
They Shoot Horses, Don’t They? (Hestar
eru skotnir, ekki satt?) hlaut Jane Fonda
titilinn „Leikkona ársins", sem gagnrýn-
endur í Ncw York veita. Mvndin gerist á
kreppuárunum i Bandarikjunum og segir
frá lifi ungrar stúlku, sem tekur þátt i
maraþon-danskeppni ásamt vini sinum til
þess að afla sér fjár og frama. I>etta fyrir-
hrigði var ekki óalgengt i Bandarikjunum
á þessum tiina; pörin dönsuðu svo dægr-
um skipti, meðan þau gátu staðið á fót-
unum, sumir misstu meðvitund vegna of-
þreytu, en það parið, sem lengst þraukaði,
hlaut peningaverðlaun. Sagan, sem mynd-
in er byggð á, er eftir Horaee MeCoy. —
— — Paul Newman er talinn vera
imynd karlmennskunnar meðal kvik-
myndaleikara. Þegar þetta var nefnt við
ciginkonu hans, leikkonuna Joanne Wood-
ward, varð henni að orði: „Hvað er þetta?
Hann er fjörutíu og fjögurra ára, á sex
börn og hrýtur á nóttunni. Hvernig get-
ur hann verið tákn karlmennskunnar?"
Fáir gera sér grein fvrir því,
hve mörg dansatriðin voru Shirley Mae-
Laine erfið í söngvamyndinni Sweet Chari-
ty. Einhver truflun er á vökva i innra
cyra hennar, svo að jafnvægisskyn lienn-
ar er mjög skert. Hún segist hafa leitað
til fjölda sérfræðinga, en allir liafi sagt
þetta ólæknandi. — — — Lee Marvin,
sem leikur aunað aðalhlutverkið í söngva-
375