Æskan - 01.07.1970, Síða 49
Edda LúSvíksdóttir.
Ungt afreksfólk
Edda Lúðvíksdóttir heitir hún og á
heima á Sauðárkróki.
Hún tók þátt í fyrstu þríþrautarkeppni
F.R.Í. og ÆSKUNNAR haustið 1966 og
komst í úrslit. i úrslitakeppninni að Laug-
arvatni sumarið eftir vakti hún mikla at-
hygli fyrir það, hve spretthörð hún var,
því hún gaf eldri stúlkunum ekkert eftir.
Hins vegar mistókst henni hástökkið, stökk
.....................
aðeins 1.05 m. Þátttakan í þríþrautinni
kveikti hjá henni áhuga fyrir íþróttum, og
tók hún nú að æfa spretthlaup og hástökk
bæði í skóla sínum og íþróttafélagi. Hún
bætti árangur sinn stöðugt, og í vetur setti
hún nýtt fslandsmet í hástökki, stökk
1,55 m.
Þannig hefur hún bætt árangur sinn í
hástökki um 50 cm á 5 árum. Edda hefur
hlaupið 100 m á 13.1 sek., sem er einnig
prýðisárangur.
Við óskum henni til hamingju með ár-
angurinn og vonum, að hún eigi enn eftir
að bæta afrek sín.
Gunnar Einarsson frá Hafnarfirði sigr-
aði í síðustu þríþraut F.R.Í. og ÆSKUNN-
AR og hlaut í verðlaun ferð til Grænlands
með Flugfélagi íslands. Þjálfari hans er
Geir Hallsteinsson, hinn kunni handknatt-
leiksmaður, sem lesendur ÆSKUNNAR
kusu „íþróttamann ársins 1969“.
Hver sigrar næst? Sjálfsagt sá, sem
bezt býr sig undir keppnina í sumar.
Verður það ef til vill þú?
Gunnar Einarsson.
r
IÞróttamaður ársins
91 lesandi ÆSKUNNAR tók þátt í kosningu á
,,íþróttamanni ársins 1969“.
Fyrir valinu varS Geir Hallsteinsson, sem hlaut
alls 72 atkvæði. Næstur kom Guðmundur Gísla-
son sundmaður með 7 atkvæði, en 10 aðrir hlutu
1—2 atkvæði.
Æskan óskar Geir til hamingju með heiður-
inn og mun veita honum viðurkenningu fyrir.
Margir óskuðu eftir mynd af Geir og fylgir hún
hér með.
Geir Hallsteinsson.
Nú er kominn tími fyrir ykkur
aS stunda æfingarnar af kappi
fyrir þríþraut FRÍ og
ÆSKUNNAR.
V
385