Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1971, Síða 5

Æskan - 01.10.1971, Síða 5
r“ Þjóðsaga frá Skotlandi \ m skozka fjalllendinu er hérað, sem Kintyre nefnist. g Landið er þarna klettótt og illt yfirferðar. í Kin- tyre eru nokkrar risastórar holur og gjótur, sem mönnum hættir enn þann dag í dag til að villast í. Sú trú hefur frá alda öðli verið ríkjandi í Kintyre, að langt niðri í þessum jarðhellum haldi undirheimafólk til, og þarna niðri séu dýrðlegar veizlur haldnar í glæsilegum, uþþ- lýstum veizlusölum. Á tunglskinsbjörtum nóttum hefur fólk í Kintyre meira að segja þótzt heyra undurfagran söng og hljóðfæraslátt upp úr gjótunum, og eru þá verur undirheimanna að skemmta sér og stiga dans. En enginn má hætta sér of nálægt bústöðum undirheimanna því þá á hann víst, að hann hendi eitthvert ólán. Einu sinni bjó í Kintyre maður að nafni Alasdair. Hann var vinsæll og dáður meðal almennings fyrir það, hve dug- legur hann var að spila á belgpípu sína fyrir dansi, sem gjarnan dunaði langt fram á nótt. Og var alkunna, að enginn í öllu landinu gæti leikið á belgpípu eins og Alasdair. Á einu slíku kvöldi þegar skemmtunin stóð sem hæst og Alasdair spilaði af hjartans lyst og betur en nokkru sinni áður, sagði hann: „Kæru vinir, nú ætla ég að spila fyrir ykkur nýtt lag, sem er ennþá fallegra og betra en allt sem áður hefur heyrzt. Meira að segja tónlist undirheimabúa verður lítilfjörleg við hliðina á laginu mínu.“ Hann þreif síðan belgpípuna og ætlaði að fara að spila. Þessi talsmátl kom mönnum mjög á óvart og var ekki frítt við að menn yrðu gripnir hræðslu. Menn vissu nefnilega, að undirheima- búar þoldu ekki að gert væri lítið úr þeim á neinn hátt. Þess vegna sagði gamall bóndi, MacGrew að nafni, við Alasdair: „Góði vinur, taktu þessi orð aftur, þú hefur fengið þér fullmikið neðan í því og ímyndar þér þess vegna, að þú sért duglegastur af öllum. — En það er satt, að þú spilar betur en aðrir sem til þekkist, en undirheimabúar þola ekki slíkan talsmáta. Tónlist þeirra ber af öllu öðru, og engin mannleg vera getur komizt í hálfkvisti við þá.“ En Alasdair sat við sinn keip. Hann sagði: „Enginn spilar betur en ég! Ég skal sýna ykkur það! Nú í nótt ætla ég að ganga um dalinn, þar sem hellarnir eru, og blása í belgpípuna mína, og sannið þið til, mig mun ekkert ólán henda." Við þetta svar urðu allir orðlausir. Menn skildu, að Alas- dair meinti hvert orð og hann ætlaði raunverulega að bjóða verum undirheimanna byrginn. Og hann tók belg- pípuna og spilaði fegursta lag, sem fólkið hafði nokkurn tíma heyrt. Það var sem það heyrði bylgjurnar gjálfra við klettana, þyt vindsins i trjánum, kyrrlátan nið árinnar og iuglasöng loftsins. Allir, sem á hlýddu, héldu niðrl í sér andanum og stóðu grafkyrrir. Enginn hafði nokkru sinni heyrt neitt þessu líkt. Og Alasdair hélt áfram að spila. Hann stóð upp, gekk út úr húsinu og tók stefnu að jarðhellunum. Allir veizlugest- irnir fylgdu á eftir honum, þar til hann kom að stóru gjót- unni, sem lá að bústöðum undlrheimafólksins. — Þorði hann að halda áfram? — Alasdair lét sér hvergl bregða, hann spilaði sem mest hann mátti og hélt ótrauður áfram. Fólkið stóð lengi og beið, aiveg fram á morgun, og vonað- ist til að sjá hann aftur. En Alasdair kom ekki til baka. Menn kölluðu á hann en enginn svaraði. Og enginn þorði að fara niður í gjótuna. Þannig hvarf Alasdair fyrir fullt og allt. Og allir söknuðu hins duglega belgpípuleikara. Nótt eina löngu seinna vaknaði MacGrew og heyrði greinilega spilað á belgpípu. Konan hans vaknaði lika. „Heyrirðu þetta,“ hvíslaði hún, „þetta er Alasdair." MacGrew hljóþ út, og í þokunni þóttist hann geta greint mann með belgpíþu. Var það Alasdair? Hann kallaði nafn hans, en maðurinn hvarf, en ómur belgpípunnar heyrðist lengi á eftir. Enn þann dag í dag er sagt, að annað slagið megl heyra Alasdair spila á belgpípuna sína að næturlagi i Kintyre. / 3

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.