Æskan - 01.10.1971, Side 13
Skúli Magnússon flugstjóri bauð Geir í flugstjórnarklefann og
sýndi honum stjórntæki þotunnar. Geir fékk meira a3 segja að
Se*jast i flugstjórasætið. Það er ekki amalegt að halda um stjórn-
völinn meSan þotan æSir áfram með 900 km hraSa á klukkustund
' 10 km hæS.
Peter Wenshauer, starfsmaSur Flugfélags islands i Frankfurt, og
Geir.
trúa Flugfélagsins, fengið i hendur farseðil og upplýsingar um
ferðina í stórum dráttum og klukkan nákvæmlega 15 m(n. yfir
11 þann 10. júli komu þau í afgreiðsiu f lugfélagsins á Reykjhvikur-
flugvelli. Þar hittu þau Grím Engilberts ritstjóra og Sveih Sæ-
mundsson og eftir að gengið hafði verið frá formsatriðum [ sam-
bandi við ferðalagið, töskur afhentar o. fl. var stigið um borð i
stóran langferðabil, sem flutti ferðalangana fyrsta áfangann, suður
á Keflavíkurflugvöll. Geir hafði aðeins einu sinni flogið áður og
það innanlands á islandi. Þotuflug yrði honum mikið og frpmandi
ævintýri. Hann litaðist um í langferðabílnum. Þarna mæltu menn
á ýmsum þjóðtungum, sænsku, ensku, þýzku auk islenzkunnar,
og allt rann þetta saman í notalegan klið. Ferðahugurinn var nú
horfinn að mestu, og hann byrjaði að njóta ferðarinnar. Hvernlg
yrði að sjá hinn forna háskólabæ, Heidelberg? Og stærsta flug-
völl í Mið-Evrópu, flugvöllinn í Frankfurt? Eða að sigla með skipi
eftir hinni sögufrægu Rin? Sveinn hafði sagt í gríni, þegar þau
ræddu ferðalagið, að vonandi yrði Lorelei ekki á sfnum stað þannig
að skip þeirra kæmist óhindrað til Koblenz. Samt hefðl nú verið
gaman að sjá þessa nafntoguðu persónu. Þeir óku sem leið lá
fram hjá Hafnarfirði fyrir ofan Jófríðarstaði, o<} Geir dáðist að út-
sýninu. Þó að sólarlaust væri í firðinum og nágrenni, skein sólin
glatt á Snæfellsnesið og Snæfellsjökull skartaði sinu fegursta. Yflr
álverksmiðjunni i Straumsvík lá þessi venjulega blámóða, sem er
liklega allt annað en holl gróðri í nágrenninu, en nú var billinn
kominn á fleygiferð og fátt markvert bar fyrir augu næstu minút-
urnar. Logn var um láð og lög. Moslnn i hraunlnu og hraun-
kambarnir tóku á sig kynjamyndir, en ganghljóð bílsins var svæf-
andi, og nú var aðeins stutt eftir af Vogastapa til Keflavikurflug-
vallar. Þeir voru á Vogastapa, þegar þeir sáu Gulifaxa koma austan
yfir og fara í löngum sveig til suðurs og lenda á Keflavlkurflugvelll.
Þar stóð líka þessi fallega þota, þegar þeir komu i flugstöðina.
11