Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1971, Page 56

Æskan - 01.10.1971, Page 56
Gauti Hannesson: Handavinna Kínverski drengurinn Ching Wu er sagaður út úr 6 mm krossviði, nema fætur og hendur, sem bezt er að hafa úr 5 mm þykkum spæni. Tvær hendur og tveir fætur eru sag- aðir út sér og síðan límdir á bolinn með griplími. Fæturnir eru sagaðir eftir efri línu á mjoðm. Fótstykkið A er sagað út úr 8 mm þykku efni og mætti vera ofurlítið stærra en myndin sýnir. Tapparnir á fótunum ganga niður í götin á því og límast fastir. Platan B, 5 mm, límist á tapp- ana á höndunum, og þegar hún er komin á sinrr stað, límist platan C ofan á hana. Þegar þið hafið svo slípað vel með sandpappír, mætti mála drenginn, t. d. jakkann gulan, buxurnar rauðar með bláum upp- brotum og húfuna græna eða bláa. Undirstaðan gæti verið appelsínu- gul. Lakkið með þunnu íakki. Margir hafa horft til himins á heiðskírum kvöldum og reynt að telja stjörnurnar, sem sjáanlegar eru; — flestir hafa gefizt upp, áður en þeir hafa lokið talningunni. En þar sem okkur þótti fróðlegt að vlta, bve margar þær væru f raun og veru, höfum við aflað okkur upplýsinga um það mál, — eftir áreiðanlegum heimildum. Á öllu himinhvolfinu sjást um 5000 stjörn- ur með berum augum. Helmingur þeirra er yfir sjóndeildarhringnum, en vegna þess að skyggni versnar eftir því sem nær dregr ur sjóndeildarhringnum, er erfitt að greina nema milli 1500 til 2000 stjörnur. Þar sem afstaða vetrarbrautarinnar til sjóndeildar- hrlngsins er breytileg eftir árstíðum, erfjöld' stjarnanna nokkru minni á vorin en á haust- in. En þær eru ekki allar upptaldar, þegar búið er að athuga himinhvolfið með berum augum, því að fjölmargar stjörnur eru svo daufar, að þær er aðeins hægt að greina i stórum stjörnusjónaukum. Sem dæmi má nefna, að fjöldi stjarnanna í vetrarbrautinni, sem hægt er að Ijósmynda gegnum stærstu sjónauka — er um það bil einn milljarður, en fróðir menn telja, að raunveruleg tala þeirra sé að minnsta kosti 100 sinnum hærrl. 54

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.