Æskan - 01.10.1971, Blaðsíða 56
Gauti Hannesson:
Handavinna
Kínverski drengurinn Ching Wu
er sagaður út úr 6 mm krossviði,
nema fætur og hendur, sem bezt er
að hafa úr 5 mm þykkum spæni.
Tvær hendur og tveir fætur eru sag-
aðir út sér og síðan límdir á bolinn
með griplími. Fæturnir eru sagaðir
eftir efri línu á mjoðm. Fótstykkið
A er sagað út úr 8 mm þykku efni
og mætti vera ofurlítið stærra en
myndin sýnir. Tapparnir á fótunum
ganga niður í götin á því og límast
fastir. Platan B, 5 mm, límist á tapp-
ana á höndunum, og þegar hún
er komin á sinrr stað, límist platan
C ofan á hana. Þegar þið hafið svo
slípað vel með sandpappír, mætti
mála drenginn, t. d. jakkann gulan,
buxurnar rauðar með bláum upp-
brotum og húfuna græna eða bláa.
Undirstaðan gæti verið appelsínu-
gul. Lakkið með þunnu íakki.
Margir hafa horft til himins á heiðskírum
kvöldum og reynt að telja stjörnurnar, sem
sjáanlegar eru; — flestir hafa gefizt upp,
áður en þeir hafa lokið talningunni. En þar
sem okkur þótti fróðlegt að vlta, bve
margar þær væru f raun og veru, höfum
við aflað okkur upplýsinga um það mál,
— eftir áreiðanlegum heimildum.
Á öllu himinhvolfinu sjást um 5000 stjörn-
ur með berum augum. Helmingur þeirra
er yfir sjóndeildarhringnum, en vegna þess
að skyggni versnar eftir því sem nær dregr
ur sjóndeildarhringnum, er erfitt að greina
nema milli 1500 til 2000 stjörnur. Þar sem
afstaða vetrarbrautarinnar til sjóndeildar-
hrlngsins er breytileg eftir árstíðum, erfjöld'
stjarnanna nokkru minni á vorin en á haust-
in.
En þær eru ekki allar upptaldar, þegar
búið er að athuga himinhvolfið með berum
augum, því að fjölmargar stjörnur eru svo
daufar, að þær er aðeins hægt að greina
i stórum stjörnusjónaukum. Sem dæmi má
nefna, að fjöldi stjarnanna í vetrarbrautinni,
sem hægt er að Ijósmynda gegnum stærstu
sjónauka — er um það bil einn milljarður,
en fróðir menn telja, að raunveruleg tala
þeirra sé að minnsta kosti 100 sinnum
hærrl.
54