Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1971, Side 68

Æskan - 01.10.1971, Side 68
^'"^uan, hinn fimmtán ára gamli son- ur Barenos lestarstjóra, skimaði úr vélarrúmi lestarinnar út í rökkrið, sem umlukti brautar- teinana, er lágu gegnum brasilíska frum- skóginn. Honum var oft leyft að fara með þennan stutta spöl frá stöðvarbæn- um El Vica, þar sem hann átti heima, til silfurnámustöðvarinnar Santa Diego og heim aftur. Juan hafði gaman af ferðum þessum og reyndi að verða að liði á leiðinni, að hluta við að hjálpa kynd- aranum og að hluta við varðstöður. Þetta kvöld var hann sérstaklega vel á verði, af því að lestin, sem var á heimleið, flutti ekki aðeins mikið magn af hrásilfri, heldur var einnig fjöldi farþega með, efnaðir námuverkamenn, sem ætluðu til stöðvarbæjarins með nýfengin laun sín. Árásir á járnbrautarlestir voru ekki óal- gengar í þessum héruðum Brasilíu. Skyndilega hrópaði Juan: „Stanzið, eitthvað svart liggur yfir teinana hérna framundan. Tálmi hefur verið settur á þá." Faðir hans þreif í hemlana. Lestin hægði ferðina og náði að stanza aðeins nokkra þumlunga frá trjádrumþunum, sem lágu þvert yfir teinana. „Madre de diosi" hrópaðl Bareno. „Heilaga guðsmóðir! Við hefðum farið út af teinunum, ef þú hefðir ekki aðvarað okkur á réttu andartaki. Þú hefur af- stýrt miklu slysi." Á samri stundu spratt hálf tylft grimu- klæddra manna út úr skógarjaðrinum og réðst inn í farþegavagnana. Lestin hægði ferðina og náði að stanza aðeins nokkra þumlunga frá trjádrumb- unum... Fulla ferð aftur á bak „Ógæfan er ekki liðin hjá,“ hrópaði kyndarinn, „jafnvel þótt ræningjunum hafi ekki tekizt að koma okkur af sporinu, munu þeir samt sem áður ræna iestina." „Nei,“ hrópaði Juan, „við getum hindrað það. Settu á fulla ferð aftur á bak, pabbi!“ Faðir hans skildi strax, hvað hann ætlaðist fyrir. „Hjálpaðu til við kynd- inguna," skipaði hann, „mokaðu kolum undir katlana, svo að við náum sem mestri ferð.“ Á næsta andartaki fór lestin af stað. Vagnarnir skröltu við höggið — síðan jókst ferðin meir og meir, þar til lestin þaut aftur á þak með fullum hraða. „Þessu hafa ræningjarnir ekki búizt við,“ sagði kyndarinn brosandi og mok- aði sem mest hann mátti. „Nei, þeir sleppa ekki út fyrr en í Santa Diego — og þar fá þeir hlýlegar móttökur," sagði Bareno hlæjandi. „Þú ert dugnaðardrengur, Juan.“ Lestin hélt hinn miklu ferð aftur á bak alla ieið að silfurnámustöðinni. Úr’eim- vagninum sá Juan, að einn ræningjanna hætti á að stökkva af lestinni. Hann hef- ur áreiðanlega goldið það með lífi sínu Að minnsta kosti fylgdi enginn fordæmi hans. Þegar þeir námu loks staðar við stöðina, voru ræningjarnir umsvifalaust handteknir. Til allrar hamingju hafði enginn farþeganna slasazt. Juan var hetja dagsins. Næstu daga á eftir kölluðu dagblöðin hann „Ofjarl lestarræningjanna", og faðir hans fékk mikii verðlaun. Drengurinn tók frægð sinni með ró. „Ég gerði nú ekki neitt, sagði hann, „nema kalla fulla ferð aftur á bak!“ itUMt /V' Hvergi i heiminum blómstrar stjörnuspekin sem í Frakk- landi. Er fjöldi fólks I flestum löndum ies stjörnuspár viku- og dagblaðanna með bros á vör, er það milljónum Frakka fúlasta alvara. Það hefur verið reiknað út, að á ári hverju eyði þeir 42 milljörðum króna í alls konar spámenn. Það kvað vera einn stjörnuspámaður á hverja 120 ibúa í París, en einungis einn læknir á hverja 514 íbúa. Hafi Parísarbúi týnt einhverju, spyr hann spámann, hvað orðið hafi af því. Óski maður velgengni í einhverju, ráðfærir maður sig við einhvern þeirra mörgu spámanna, sem auglýsa í hinum stóru stjörnuspekiblöðum, sem koma út mánaðarlega. Sé maður í vafa um ástmey sína eða elskhuga, þá er ákveðinn „prófessor", sem getur sagt allt um persónuleika hennar eða hans, sjái hann einungis rithönd þess, er sálgreina á. Þó verður að taka það fram, að flestir þeir, sem eru svo hjátrúarfullir, eru sveitafólk, komið á efri ár, og er það oftast snautt af veraldlegum auði. Hjátrúarfullir Frakkar

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.