Æskan - 01.10.1973, Side 26
•VUiV1 ^
-é-ti'C,
Folinn minn af öllum folum ber,
með faxið bjart og gullna stjörnu’ í enni.
Sólfaxi minn er sætastur! Já, það finnst mér!
Stolt hans og hreysti ég kenni.
Ég held líka’ að honum þyki
nú harla vænt um mig,
vegna þess hann þýtt mig leit,
þótt hann væri’ á belt.
Hvenær gerðist það fyrst?
^^"•ætum við hugsað okkur tilveruna
án plasts? Já, ef til vill gætum
* við það, en óneitanlega mundu
þá hverfa af sjónarsviðinu ýmsir þeir
hlutir, sem okkur finnast svo sjálfsagðir
( dag. Margir eru þó enn á því, að
plastið sé aðeins gerviefni, sem notað
sé í stað hinna ,,ekta“ efna, svo sem
postulíns, trés, málma og marmara.
„Plastöldin" hófst fyrir rúmum hundr-
að árum með því, að upp var fundið
og framleitt efni, sem kallað hefur verið
celiuloid. Það var fyrst i stað notað sem
staðgengill fyrir hið dýra fílabein, t. d.
f skrautgripi, blævængi, flibba og brúðu-
höfuð. Efni þetta kom sem sagt til sög-
unnar árið 1870 og náðl fijótlega all-
mikilli útbreiðslu.
Um síðustu aldamót varð breyting á
i þessum málum. Fyrirtækið Bakelite
fékk einkaleyfi á framleiðslu nýs efnis,
sem þó var mjög skylt celluloid. Var
það nefnt „bakelite” eða ,,raf“. Þetta
nýja efni var sérstaklega mlkið notað f
rafmagnslðnaðinum og svo í ýmsa aðra
muni, eins og hárgreiður, hárspennur,
púðurdósir, hátalara o. fl.
Svo leið timinn fram að síðari heims-
styrjöldinni 1939. Styrjaldir ýta oft undir
nýjar uppfinningar, og svo fór einnig
hér. Ýmsar þjóðir bjuggu við skort á
mörgum náttúrlegum hráefnum, svo sem
gúmmí og harpis, og tóku því margir
hugvitsmenn til við að reyna að frarn-
leiða eitthvert gerviefni, sem nota maehl
til margs konar hluta, t. d. í umbúðir
ýmiss konar. Þá rann upp plastöldin
fyrir alvöru, og núna er það svo,
að
plastið er orðið mjög snar þáttur í dag-
legu lífi manna. Við skulum taka sem
dæmi umbúðaiðnaðinn. Smátt og smátt
er plastið að taka við hlutverki glersins,
plastflöskur, brúsar og alls konar sma-
ílát, gerð úr ýmsum tegundum plasts,
sjást nú á næstum hverju heimili, en
voru óþekkt fyrir minna en mannsaldri-
Og vafalaust leynast enn þá margir
möguleikar í framleiðslu plastefna, sem
enn þá hafa ekki séð dagsins Ijós.
Brúðuhöfuð og fllbbl úr cellulold.
Simtól úr plasti.
Hlutir úr bakelite.
24