Æskan - 01.05.1974, Síða 65
grafreitir fyrir ketti
Stuttu eftir að kötturinn kom til Egyptalands, var fariS að tigna hann og tilbiðja
sem guð. Högninn var dýr sólguðsins Ra, en læðan tilheýrði frjósemisgyðjunni
Bastet.
Bastet lýstu Egyptar sem konu með kattarhöfuð, og þegar hún átti hvað mestum
vinsældum að fagna, um 900 f. Kr., gerðu Egyptar grafreiti f höfuðborginni Bu-
bastis í óshólmum Nílar.
Þessir grafreitir voru notaðir í margar aldir, og þar hafa fundizt kistur og katta-
snnurlingar, sem innihéldu jarðneskar leifar kattanna.
SA SEM VEIFAR SKOTTINU
Hvað útbreiðslu kattarins til annarra landa viðvikur, Iftur út fyrir, að hann hafi
b°rizt til Evrópu með fönfskum verzlunarskipum, en f lok 6 aldar f. Kr. voru
h'ðar samgöngur milli Egyptalands og Grikklands.
Ekki virðist kötturinn hafa náð jafnskjótum eða jafnmiklum vinsældum hjá
Grikkjum. Það var fyrst um 400 f. Kr. að farið var að temja köttinn þar svo nokkru
nsemi. En á þeim tíma höfðu börnin í Hellas fundið sér góðan leikfélaga, þar sem
'kötturinn var. Þessu til sönnunar má geta þess, að fundizt hefur litil kanna með
rnynd af ketti, sem situr á stólkolli, en framan við hann stendur Iftill drengur og
''eikur á hörpu.
350 e. Kr., sem orðið cattus kemur fyrir f rómverskum bókmenntum.
Eftir þennan tima var kötturinn talinn nytsemdardýr við útrýmingu músa og
ennarra meindýra f húsum.
f BLÓMVANDAR-
leikur
í þessum leik geta verið svo
margir sem vilja. Einn þátttak-
andinn er kosinn „garðyrkju-
maður", og setjast allir kring-
um hann. Garðyrkjumaðurinn
gefur öllum blómanöfn, og svo
fer hann að segja frá garðyrkju-
störfum sínum. Þegar hann
nefnir ( frásögn sinni blóma-
nafn, sem einhver þátttakand-
inn hefur fengið, verður sá hinn
sami að standa upp, snúa sér
f hring og setjast áftur. En sá,
sem gleymir að gera þetta,
verður að gefa pant. Þegar
garðyrkjumaðurinn segir „blóm-
vöndur", verða allir að standa
upp, snúa sér f hring og skipta
um sæti. Og þá á garðyrkju-
maðurinn að nota tækifærið og
reyna að ná sér í eitthvert sæt-
ið meðan það er laust. En sá,
sem ekkert sæti nær f, verður
að vera garðyrkjumaður í næsta
sinn.
OFSÓTTUR SEM GALDRAKIND
Svartasta tímabilið í sögu kattakynstofnsins var síðast á miðöldum, þegar galdra-
°fsóknirnar stóðu sem hæst. Þar sem kötturinn er eðli sínu samkvæmt dýr myrk-
Ursins, skipuðu menn honum sess með galdranornunum. Þúsundir katta týndu
l'finu í þessum ofsóknum, og þegar þeim loks létti, var víða langt til búið að út-
rÝrna kattastofninum.
Kötturinn hefur því á liðnum öldum ýmist verið hafinn f hæsta sæti, tilbeðinn og
'ignaður sem guð af stórri þjóð, og síðan verið ýtt út f yztu myrkur og ofsóttur sem
ðaldrakind og versta forað. Það er fyrst nú, að kötturinn gegnir hlutverki við sitt
h®fi, sem ósköp venjulegt en skemmtilegt húsdýr, sem öllum þykir vænt um.
SVOLÍTILL
LEIKUR
Taktu glas með vatni og settu
það á borðið, og legðu svo
pappaöskju ofan á. — „Nú skal
ég drekka vatnið úr glasinu án
þess 'að snerta á öskjunni,"
segir þú svo. Bezt er að hafa
dúk á borðinu, helzt svo stóran,
að hann nái langt niður. Svo
skrfður þú undir borðið og læt-
ur heyra f þér eins og þú værir
að drekka. Svo kemurðu fram
aftur, þurrkar þér um munninn
með vasaklútnum þfnum, og ein-
hver efagjarn strákur tekur nátt-
úrlega upp öskjuna til að sjá,
hvort vatnlð sé farið úr glasinu.
— Þá grlpur þú glasið og drekk-
ur úr þvl. „Sjáið þið, nú drakk
ég vatnið án þess að ég hafi
snert við öskjunni," segir þú
o svo hróðugur.