Æskan - 01.01.1980, Qupperneq 4
Haglkornln eru ekki alltaf hnöttótt eða
egglaga. Þau geta tekið á sig hinar furðu-
legustu myndlr, elns og hér má sjá.
Snjórinn minnir ósjálfrátt á hvítan
lit, en þó er snjór ekki alltaf hvítur. Þar
sem snjókornin kristallast í loftinu eru
þau glær og gagnsæ eins og gler. En
þegar þau falla í dyngju til jarðar, eða
skefur í skafla, þá sýnist snjórinn
hvítur vegna þess að kristallar hans
endurkasta Ijósinu jafnt í allar áttir.
Snjókorn eru létt vegna þess, að
alltaf er nokkuð af lofti í þeim. Snjór-
inn hefur ekki nema 1/15 af þunga
íss, en ísinn hefur aftur á móti 9/10 af
þunga vatns.
Það er einkennilegt að þau snjó-
korn, sem myndast við lítinn kulda,
eru miklu stærri en hin sem myndast í
miklu frosti. Snjór, sem fellur í miklu
frosti á norðurhveli jarðar, er þannig
gerður að kornin eru örsmá eins og
sandkorn, og þess vegna hafa vís-
indamenn kallað þetta „sandsnjó".
Þessi snjór er harður og slítur mjög
skíðum og sleðum.
Svo eru til önnur snjókorn enn
minni og hafa vísindamenn nefnt þau
„demantsryk". Þetta eru örsmáir
kristallar, sem eru eins og salli í loft-
inu, virðast svo létt að þau geti varla
hnigið til jarðar. Ef maður horfir í
móðu þeirra rétt undir sól, þá glitra
allir þessir örsmáu kristallar eins og
þeir væru demantar.
Hrím
Það er með ýmsu móti, en kunn-
astar eru frostrósir á gluggum, þessi
undursamlegu listaverk. En er fram í
sækir breytast þessar rósir í hélu.
Héla eða hrím myndast einnig á
víðavangi, eins og oft má sjá á stein-
um og málmum og í moldarflögum.
Hún myndast af vatnsgufum úr loft-
inu, þegar aðeins er frost við yfirborð
jarðar, og getur hæglega myndast
þótt frostlaust sé í fárra feta hæð yfir
yfirborði jarðar.
Þetta hrím myndast ekki þar sem
mjög raklent er. Oft gerir hrímið mikið
tjón á ökrum erlendis. Hafa menn því
tekið upp á því, til þess að verja upp-
skeruna, að veita vatni á akrana, eða
brenna moðrusli þar. Uppgufunin af
vatninu varnar hélumyndun, og reyk-
inn leggur venjulega með jörðu, þeg-
ar slíkt er veðurfar, og hlífir hann þá
gróðrinum.
Snjókristallar af ýmsum gerðum. 2, 4 og 7
eru eins og sexhyrndar stjörnur. 1 er
einnig sexhyrningur, en hefur misst
skraut sitt við að lenda í hlýju loftl. 3 kalla
menn „líningarhnapp", vegna þess, að
þar eru tvö skæði og fótur á milli. 5 er líkur
stuðli og hefur myndast hátt í lofti. 6 er
þríhyrningur, og er það sjaldgæft fyrlr-
brlgði.
Hagl
Svo er enn ein tegund af snjó, sem
kölluð er hagl. Það eru hörð og mis-
munandi stór korn, sem falla úr háa-
lofti. Þessi korn myndast þannig, að
ískristallar, sem eru fallandi, hitta fyrir
uppstreymi af hlýrra lofti og berast
með því upp í kalt loft aftur, og mynd-
ast þá íshúð utan um þá. Síðan falla
þeir aftur niður í hlýrra loft og berast
svo með uppstreymi þess á nýjan leik
upp í kalt loftlag, og bætist þá önnur
íshúð utan á þá. Þannig gengur þetta
koll af kolli og alltaf stækka kornin.
Stundum festast tvö eða fleiri saman
Haglkorn geta orðið mjög stór. Hér er sýnt
haglkorn (til vinstri) og venjulegt hænu-
egg tll samanburðar.
og hlaða utan á sig ísbrynju, þangað
til þau eru orðin svo að segja hnöttótt
og svo stór og þung, að loftið getur
ekki haldið þeim uppi. Þá falla þau til
jarðar, og hafa oft valdið stórtjóni.
Þegar slík haglél gerir, er hvorki
mönnum né málleysingjum líft á ber-
svæði, því að kornin geta verið á
stærð við gæsaregg, eða enn stærri.
Slydda
Hér er hvorki um hagl né snjó að
ræða, slyddan hefur ekki náð að
kristallast. Geta legið til þess tvær
ástæður. Önnur er sú, að regnskúr
hafi tekið að falla til jarðar hátt í lofti,
þar sem hlýtt er, en hafi á leið sinni til
jarðar farið í gegnum kuldabelti í loft-
inu og droparnir hálffrosið þar, áður
en þeir komust til jarðar. Hin ástæðan
er sú að snjór hafi verið að byrja að
myndast hátt í lofti og tekið að falla,
en á leið sinni til jarðar hafi loftið
hlýnað og snjókornin hálfbráðnað.
fs og jökull
ís er ekki annað en frosið vatn.
Hann myndast á yfirborði þegar hiti er
fyrir neðan frostmark einhvern vissan
tíma, og er samsafn af litlausum
kristöllum. En ís getur þó ekki mynd-
ast fyrr en vatnið sjálft hefur kólnað
svo mjög, að það hefur fengið sinn
mesta þéttleika á yfirborði. Meira frost
þarf til þess að sjó leggi en vatn, og
tekur sjó ekki að leggja fyrr en 4/5
hlutar af saltmagni yfirborðsins hafa
sokkið dýpra undan kuldanum.
Hafís er ekki alltaf ís, heldur hjarn
sem orðið hefur að jökli og brotnað
framan af skriðjöklum. Slíkir jakar
2