Æskan - 01.01.1980, Side 6
Iðkendum íþrótta fer jafnt og þétt
fjölgandi á Islandi. í árslok 1978 voru
þeir taldir vera 65.652 talsins, og
hafði fjölgað um tæp 4 þúsund frá
árinu áður. Auk þess vinna svo rösk-
lega 5.000 manns að ýmsum störfum
í þágu íþróttahreyfingarinnar, þannig
að tala virkra þátttakenda í íþrótta-
starfinu var talin vera 70.757 árið
1978. Má til samanburðar nefna að
árið 1971 voru íþróttaiðkendur taldir
YFIR 70 ÞÚSUNDIR
ÞÁTTTAKENDA
vera 37.516 talsins. Hefur því nánast
orðið helmings aukning á þessum 7
árum.
Samkvæmt skýrslum ISÍ skiptast
íþróttaiðkendur þannig milli íþrótta-
greina árið 1978:
Badminton 4.099, biak 2.501,
borðtennis 1.996, fimleikar 2.923,
frjálsar íþróttir 7.404, glíma 396, golf
1.422, handknattleikur 9.257, júdó
564, kastlínuíþróttir 123, knattspyrna
14.960, körfuknattleikur 3.781, lyft-
ingar 623, róður 99, siglingar 475,
skautaíþrótt 853, skíðaíþrótt 8.798,
skotfimi 572, sund 4.706, tennis 60.
Þegar Jörgen og þjónar réttvísinn-
ar komu að bílnum, varð Pjakkur mjög
glaður og flaðraði upp um húsbónda
sinn, eins og hann vildi segja að ,,allt
er gott þá endirinn er góður.“
Lögregluþjónarnir tóku þjófinn í
sína vörslu og sáust glöggt á honum
tannaför eftir hundinn og einnig voru
klæði hans rifin. — Hann sagði frá
því, að sér hefði veriö ómögulegt að
sleppa út úr bílnum eftir að hundurinn
stökk upp í framsætið þarna á bif-
reiðastæðinu. Einasta leiðin til að
sleppa var að nota bílhornið, hvað
hann og gerði. —
Það gerðist heima hjá Jörgen þetta
kvöld, að eftir að Astrid hafði gefið
Pjakki vel að eta, þá fékkst hann ekki
til þess að leggjast í körfuna sína, þar
sem hann var vanur að sofa, heldur
gekk hann að framdyrum bílsins.
Þegar þær voru opnaðar stökk hann
upp í sætið og bjóst til að sofa þar. —
Það var látið eftir honum. Og betri
vörð var ekki unnt að fá. Það henti
einu sinni að ókunnur maður fór í
ógáti að rjála við bílinn, en þá var
Pjakkur fljótur að standa á fætur og
sýna hvassar tennur sínar.
Svo má í lokin geta þess til gamans,
að nokkru seinna seldi Jörgen bíl sinn
og fékk sér nýjan I staðinn. Þá var sem
Pjakkur missti allan áhuga fyrir því að
gæta hans. Hann fór nú að sofa á
gamla staðnum sínum á hverri nóttu
og ekki fór hann heldur í neinn leið-
angur til þess að leita að þeim gamla,
hann Pjakkur — hann vissi sínu viti,
sögðu menn.
Lausl. þýtt úr dönsku. G.H.
Hvaða leið á kanínan að fara til þess
að lenda ekki í klónum á hinum úrilla
garðyrkjumanni?
4