Æskan - 01.01.1980, Síða 17
MARÍA HUGRÚN ÓLAFSDÓTTIR
Þetta er fyrsta sagan, sem
listakonan María Hugrún Ólafs-
dóttir skrifaði og myndskreytti, en
það var árið 1971, og segir sagan
frá ferðalagi og dvöl fimm ára ís-
lensks drengs, sem hélt frá ís-
landi með móður sinni fyrir
mörgum árum til dvalar í borginni
við sundið, Kaupmannahöfn.
María Hugrún Ólafsdóttir var
þekkt listakona í Danmörku. Hún
fæddist í Tálknafirði árið 1921.
Hún stundaði nám fyrst við
Handíðaskólann í Reykjavík við
stofnun hans árið 1941. Nam síð-
ar við listaháskólann í Kaup-
mannahöfn í 6 ár og hafði tekið
pakka upp öllu dótinu okkar hjá
frænku og manninum hennar."
Daginn eftir fór Villi að skoða Ama-
lienborg. Þar býr konungur og
drottning með þremur prinsessum og
líka mörgum hirðmeyjum og hirð-
mönnum. Fyrir framan höllina er stórt
svæði og er það til þess, að margt fólk
geti komið og heilsað upp á konung-
inn og drottninguna, þegar þau koma
fram á svalirnar. Villi staðnæmdist við
súlurnar, sem eru fyrir enda götunnar
inn að höllinni. Þar stóð konunglegur
lífvörður í einkennisbúningi með
byssu í annarri hendi. ,,Góðan dag-
inn, má ég fara inn?" spurði Villi, en
lífvörðurinn svaraði ekki. Þá varð Villa
litið inn á svæðið, og hann sá prins-
essurnar. Það vildi svo heppilega til,
að þær voru að fara út að ganga með
hirðmeyjum; en prinsessur eru ekki
frábrugðnar öðrum börnum, að þeim
finnst gaman að leika sér. Þær tóku
bolta með, hlupu svolítið á undan yfir
plássið og léku sér. Nú missti minnsta
prinsessan boltann, og hann valt í
áttina til Villa, sem ekki var seinn að
ná í hann og rétti þrinsessunni,
bneigði sig og sagði: ,,Komdu sæl."
það skildi prinsessan ekki. Nú kom
eldri systir hennar og spurði: ,,Hvað-
an ertu, drengur?" ,,Ég erfrá íslandi."
’.Jaeja," sagði prinsessan. ,,Ég skil
mjög lítið í íslensku, en afi minn og
amma mín voru konungur og drottn-
ing yfir íslandi og voru þar þrisvar
sinnum. Kannski hefðu þau skilið
Þig“
,,Já," sagði Villi og fór til mömmu
sinnar. „Mamma, þú verður að kenna
þátt í listsýningum með lista-
mannafélaginu „Se“ á Charlott-
enborg, ennfremur hélt hún
margar sjálfstæðar sýningar og
ferðaðist víða um lönd, þar á
meðal heimsótti hún ísland og
hélt hér sýningar.
Margar opinberar stofnanir í
Danmörku keyptu verk eftir
Maríu, og hlaut hún marga heið-
ursstyrki fyrir verk sín. María lést
á síðastliðnu ári aðeins 58 ára að
aldri.
Ferðalag Villa litla er skemmti-
legt lestrarefni handa öllum
börnum.
mér dönsku," sagði hann. En eftir því
höfðu prinsessurnar ekki tíma til að
bíða. Þær voru farnar leiðar sinnar.
Villi þurfti að skoða fleira en kon-
ungshöllina.
Það eru margir skurðir, sem skipta
borginni í hverfi; á sumum þeirra
15