Æskan - 01.01.1980, Qupperneq 24
Þann 24. nóvember sl. frumsýndi
Þjóðleikhúsið nýtt barnaleikrit eftir
Guðrúnu Helgadóttur undir leikstjórn
Brynju Benediktsdóttur. Leikrit þetta
er tilraun höfundar til að kenna börn-
um að skilja þá fullorðnu. Erfiðleikar
barnanna eru oftast sprottnir af erfið-
leikum hinna eldri. Er reynt í leikritinu
að hafa atburðarásina lifandi og fjör-
uga og er ekki að sjá annað en það
hafi tekist mjög vel. Leikritið er ekki
skrifað fyrir ákveðinn aldursflokk
barna, en flest börn munu finna þar
eitthvað við sitt hæfi.
Yfir 20 börn taka þátt í sýningunni
og er það yngsta aðeins 6 ára en elsti
leikarinn er Ævar Kvaran. Hann leikur
yngsta barnið sem er í kerru. Hlutverk
barnanna eru flest mjög stór, en mest
af textanum mæðir þó á þremur leik-
urum, þeim Sigurði Skúlasyni og
Randver Þorlákssyni sem leika tvo
litla (eða öllu heldur stóra) bæjar-
stráka og Guðrúnu Þórðardóttur.
Unglingarnir eru eina fólkið í leikritinu
sem er nokkurn veginn á réttum aldri,
en Guðrún leikur stærsta unglings-
hlutverkið.
Börnin sem koma fram í þessum
skemmtilega leik eru öll úr skólum
borgarinnar og eru á ýmsum aldri.
Áreióanlega eiga margir eftir að brosa
OVITAR
að tiltækjum fullorðna fólksins, sem
leikur börn, og barnanna sem leika
hina fullorðnu. Höfundur og Þjóðleik-
húsið eiga þakkir skildar fyrir að færa
upp þetta skemmtilega leikrit í lok
barnaársins.
Guðrún Helgadóttir, höfundur leik-
ritsins ,,Óvitar“, er fædd í Hafnarfirði
og ólst þar upp, elst af tíu systkinum.
Fyrsta bók hennar var Jón Oddur og
Jón Bjarni, sem kom út árið 1974.
Árið 1975 kom svo Meira af Jóni Oddi
og Jóni Bjarna og árið 1976 var gefin
út bókin í afahúsi. Páll Vilhjálmsson
kom út 1977, en Guðrún hafði þá um
tveggja vetra skeið skrifað textann fyrir
Sirrý og Palla í Stundinni okkar í
sjónvarpinu. Það eru fleiri en íslensk
börn sem fá tækifæri til að kynnast
bókum Guðrúnar, því bókin um Jón
Odd og Jón Bjarna hefur komið út á
dönsku og finnsku og er væntanleg á
hollensku og fleiri tungumálum innan
tíðar.
Guðrún Helgadóttir hefur gert fleira
en að skrifa fyrir börn. Hennar aðal-
starf er að vera deildarstjóri í Trygg-
ingastofnun ríkisins auk þess sem
hún er fulltrúi í borgarstjórninni í
Reykjavík og þingmaður. Hún á fjögur
þörn.
22