Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1980, Side 35

Æskan - 01.01.1980, Side 35
Hér með er þeirri hugmynd komið á framfæri að hafa sérstakan foreldra- þátt í Æskunni. Blaðið er að ýmsu leyti fjölskyldublað. Víða er það lesið af heimilisfólkinu. Hví skyldu foreldrar barna þá ekki leggja orð í belg við og við um þá andlegu næringu sem börnum þeirra er gefin? Barnablöð á íslandi hafa frá upp- hafi þjónað tvennskonar tilgangi: verið til skemmtunar og fróðleiks. Þannig hefur það verið með Æskuna, Unga ísland, Vorið og fleiri blöð. En öll hafa þessi blöð átt það sam- eiginlegt að stuðla að heilbrigðum lífsviðhorfum barna og þannig hjálp- að heimilunum til við uppeldi barn- anna. Blöðin hafa leitast við aó flytja göfgandi efni fyrir börnin og gera þau að bjartsýnu fólki. Þau hafa flutt já- kvæð lífsviðhorf. Sem dæmi um það má nefna trúarleg viðhorf og að kynna ýmsar listir. Dæmi eru til um að listamenn okkar hafa séð fyrstu myndina er hreif þá mest í barnablaði. Þar hafa börnin oft lesið fyrstu sög- una eftir einhvern sem síðar varð eft- irlætishöfundur þeirra. Við eldra fólkið sem áttum þess ekki kost í bernsku að fá barnablöð inn á dalabæina, fengum stundum eins og eina barnabók og marglásum hana. Ég minnist í því sambandi á ,,Leik- föng" og „Róbínson Krúsoe". En þessar góðu barnabækur áttu það sameiginlegt með barnablöðunum að flytja göfgandi efni sem miðaði að því að gera börnin að góðu fólki. Nú er þetta breytt. Þýddar mynda- bækur nútímans hafa annað mark- mið. Þær hafa ekki uppeldislegt sjónarmið barnafyrir augum. Þær eru margar æsandi, ef þær sýna þá ekki ofbeldi og takmark þeirra virðist allt annað. Það að græða sem mest á bókinni. Gróðasjónarmiðið er þar í hásæti en ekki mannbætandi lesefni eins og í Æskunni. Þetta er uggvæn- leg þróun. Svo eru þessar myndasögur engar sögur í venjulegri merkingu. Allt er skýrt fyrir börnunum í myndunum og þau fá ekkert til að brjóta heilann um. Þetta er forheimskandi lesefni. Og hugmyndaflug nýtur sín ekki eins og við lestur venjulegrar barnasögu þar sem þau sjá í huganum myndirnar sem sagan bregður upp. Æskan hefur frá upphafi boðað trúrækni og bindindi. Hún hefur boðað kristna lífsskoðun. Og ég held að bindindisboðun hafi gildi enn í dag, þó að ýmis nautnaefni vaði nú uppi í gerspilltum heimi. Er það ekki Eiríkur Sigurðsson. einhvers virði að hafa útbreitt blað eins og Æskuna í baráttunni við síga- rettureykingarnar? Ég læt þessum þætti lokið og kasta boltanum til þess næsta. Foreldrar. Takið til máls í Æskunni og segið frá hvers virði hún er fyrir börn ykkar. Eiríkur Sigurðsson. NÁTTÚRUSTEINAR íslendingar höfðu lengi mikinn átrúnað á ýmsum steinum, sem til áttu að vera hingað og þangað um landið, en því miður var ekki auðhlaupið að finna þá. Steinar þessir voru kallaðir náttúrusteinar. Þeir hétu ýmsum nöfnum, svo sem „lausnarsteinar", „lífsteinar", „óskasteinar", „huliðs- hjálmssteinar", „sögusteinar", „blóðstemmusteinar" o. s. frv. Þeir voru sagðir oftast vera að finna í fjallatjörnum og djúpum vatnsgjótum. Steinar þessir áttu að hafa þá náttúru að fljóta uppi á yfirborði vatnsins á Jónsmessunótt. Áttu þeir þá að hefja einhvers konar leik á yfirborði vatns- ins og þá átti að vera tækifæri að ná þeim. Mest er um vert að undirstaðan sé rétt og vel hlaðin, en til þess að hleðslan gangi vel þurfa snjóþynn- urnar að vera jafnar og vel sniðnar, stærð 40X60 cm og þykkt eftir snjó- lagi. Best er að hafa til snjóskurðar spaða með beinu blaði. Fyrsta lagið verður að byrja með lágri sneið en síðan hækkar lagið jafnt allan hringinn upp í fulla hnaus- þykkt. Verður þá næsta röð áfram- haldandi eins og gormlöguð jafnbreið lengja. Gætið þess að samskeyti blokkanna standist ekki á og hallið blokkunum inn á við, þannig að borgin verði bungumynduð. Að lok- um verður hringmyndað gat efst í kúpunni og er felld í það snjóskífa. Jafnóðum og hlaðið er verður að sníða af allar ójöfnur og troða snjó í smáglufur. Dyraopið er gert síðast. Best er að grafa göng út úr borginni, ca. 2 m löng, helst það djúp að þau séu lægri en gólfflöturinn. Kalda loftið í göng- unum hindrar þá að loftið sem hitnar í húsinu streymi viðstöðulaust út þegar göngin standa opin.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.