Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1980, Page 43

Æskan - 01.01.1980, Page 43
Við barnablaðið Æskuna ®ru margar og bjartar bernskuminningar tengdar. þegar ég var 7 ára gamall gaf ^óðursystir mín mér eins árs askrift af blaðinu og lengst af hef ég verið kaupandi þess UPP frá því. Ég minnist þess, að oft taldi é9 dagana þangað til Æskan kasmi. Margt las ég þar mér til óeinnar skemmtunar. Einnig var þar kærkominn fróðleik að finna. Og síðast en ekki síst voru þar sögur, sem vöktu óarnshugann til alvarlegrar íhugunar bæði á vettvangi hindindis og trúar og almenns siögæðis. Æskan var gott blað, hún var skemmtileg, þroskandi og 9öfgandi. Nú hefur Æskan náð átt- ræðisaldri. En ellimörk sjást alls engin á henni. Ennþá er hún gædd sömu góóu eigin- leikunum sem fyrr. Hún skemmtirenn, þroskarenn og 9öfgarenn. Um leið og ég árna henni heilla og blessunar Guðs á ^erkum tímamótum, þá bið ég þess, að henni megi auðnast héðan í frá sem hingað til að reynast því hlut- verki sínu trú að benda ís- lenzkum æskulýð á bless- unarvegu. Björn Jónsson, Akranesi. Helmir Hannesson. Þegar svo er komið, að þjóðlífsumræðan mótast af mismunandi háu vísitöluþaki, stjórnmálaumræðan af mark- lausum slagorðum eða gífur- yrðum og rótleysi fer vaxandi með þjóðinni, er ánægjulegt að sjá einhvers staðar festu, öryggi og stefnu. Allir sem eitthvað þekkja til útgáfu- starfsemi hljóta að dást að því afreki, sem í því felst að halda út lifandi blaði í heil áttatíu ár. Að baki þeim ólýsanlegu störfum er sérstök þraut- seigja, eldmóður og hug- sjónakraftur. Æskan kom að sjálfsögðu til okkar á æskuheimilinu fyrir noróan og komu hennar tengjast nokkuð óvanalegar bernskuminningar, sem gam- an er að rifja upp á hátíða- stundum. Á heimilinu var gef- ið út annað barnablað og stundum var ekki laust við að Norðanmenn bæru saman útlit, efni og útbreiðslu — út- gefendur sunnan og norðan fjalla báru saman bækur sínar og þó að boðskapurinn væri keimlíkur mótaðist framsetn- ing, stærð og hugmyndir af aðstæðum og þeim aðilum er verkið unnu. Hvað sem öllu þessu leið er gaman að minnast þessara ára er Æsk- an var lesin upp til agna og vandlega skoðuð hverju sinni. Einhvern veginn finnst mér ekki hægt annað, þegar Æskan er nefnd, að minnast í senn eins helsta frumherjans, sem nú er látinn, Jóhanns Ögmundar Oddssonar. Nafn hans tengist Æskunni jafn lengi og hún lifir og allri þeirri fjölþættu starfsemi er henni var og er tengd. Bindindis- samtökin á íslandi hafa alla tíð verið útgefendur Æskunn- ar. Stundum er sagt, að þau samtök séu ekki alltaf í takt við tímann. Það skyldi þó ekki vera, að margir hugsjóna- mennirnir í þeirri sveit hafi stundum verið á undan hon- um — og samtíð sinni um leið? Að minnsta kosti voru þeir fáir vísindamennirnir og læknarnir, sem vöruðu þjóð sína við hættum tóbaksreyk- inganna, þegarsá boðskapur var fyrir áratugum síðan flutt- ur árið um kring af fjölmörg- um lítt lærðum leikmönnum og tileinkaður ungu kynslóð- inni. Æskan í Reykjavík og Vorið á Akureyri fluttu les- endum sínum þennan boð- skap áratug eftir áratug — nú fyrst virðast menn vera farnir að rumska og er það alltaf ánægjulegt þegar fram kemur árangur erfiðisins þó að flestir frumherjanna séu nú liðnir. Á merku afmæli lifandi blaðs og tímamóta merkra samtaka er ástæða til að þakka heilladrjúgt starf. Sér- staka þökk ber ritstjóranum síunga, Grími Engilberts, sem tryggt hefur Æskunni sess sem útbreiddasta tímariti landsins. í því felst líka ábyrgð, en Grímur ritstjóri og samtökin er að baki honum standa hafa sýnt í verki, að þau eru vandanum vaxin. Til hamingju! Heimir Hannesson, hæstaréttarlögmaður. (var Guðmundsson. Æskan brýnir fyrir hinum ungu lesendum sínum að sýna mönnum og málleys- ingjum umburðarlyndi og hvetur þá til að lifa í friði svo

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.