Æskan - 01.01.1980, Side 45
AFMÆLISBÖRN í OKTÓBER
Guðrún Hulda Jónsdóttir.
Kjartan Sigurðsson
Aðeins fjögur börn hafa sent af-
mælisdaga, sem ber upp á afmælis-
dag Æskunnar 5. október, og birtum
við hér myndir af þeim, og frá tveimur
þeirra fengum við þessi ágætu bréf.
Kæra Æska!
Ég heiti Guðrún Hulda, alltaf kölluð
Gunna, og varð 4 ára 5. október. Ég
vona að ég verði afmælisbarn hjá
ykkur; sendi mynd af mér, þegar ég
var lítil.
Við erum 5 systkinin. Bróðir minn 7
ara og systir mín 8 ára eru byrjuð í
skólanum, þau fara kl. 8.30 á morgn-
ana með skólabílnum og koma heim
kl. 2 þrjá daga vikunnar, en á föstu-
dögum ekki fyrr en kl. 4. Mér finnst
þetta langur tími, en ég hef alltaf nóg
að gera. Litli bróðir minn, sem fæddist
í febrúar, er orðinn duglegur að
skríða svo að ég þarf að gæta hans
vei.
Kisa okkar, hún Skella-Brella-
Doppu-Lína (við vorum mörg sem
skírðum hana) á 4 kettlinga. Þeir eru
orðnir fjörugir, en það er samt stutt
síðan þeirvoru blindirog pínulitlir.
Endurnar heita Mjallhvít, Ösku-
buska, Þyrnirósa og steggurinn
^argur. í sumar voru þær með 15
unga, það var gaman að sjá þá koma
úr eggjunum og stækka, en nú eru
þeirfullvaxnir.
í fyrra vorum við með kiðling sem
heimaling, hann elti okkur eins og
hvolpur. Mikið var hann skemmtileg-
ur.
Margar kindur á ég og fer oft í fjár-
húsið. Nokkrar þekki ég og þeim þykir
gott að láta strjúka sér og þiggja
brauðbita hjá mér. Lamb fæddist í vor
með 8 fætur en það lifði ekki lengi.
Gaman þykir mér og okkur systkin-
unum þegarÆskan kemur. Og margt
er þar skemmtilegt, þó er Bjössi bolla
bestur!
Kær afmæliskveðja.
Guðrún Hulda Jónsdóttir,
Bláhvammi,
641 Húsavík.
Kæra Æska!
Ég sendi þér þessa mynd af mér.
Hún er nú reyndar ekki ný (2 ára); ég
er með hjálm, sem pabbi notar í
rally-akstri. Ég á afmæli sama dag og
þú, 5. október (1975), ég er núna 4
ára. Ég er búinn að vera áskrifandi
síðan ég var 3 eða 4 mánaða. Afi gaf
mér áskriftina, en mamma ætlar að
geyma fyrir mig öll blöðin þar til ég
verð stærri. Pabbi og mamma lesa
alltaf fyrir mig, mest gaman er að
myndasögum.
Vert þú nú þlessuð og gleðileg jól
og farsælt nýár.
Kjartan Sigurðsson,
Karfavogi 15, Rvík.
AFMÆLISBÖRN
í OKTÓBER
Dregin voru út eftirtalin nöfn: Ásta
Svavarsdóttir, f. 5. 10. 1968, Vestur-
bergi 7, Reykjavík; Kjartan Sigurðs-
son, f. 5. 10. 1975, Karfavogi 15,
Reykjavík; Hafþór Árnason, f. 17. 10.
1973, Safamýri 44, 105 Reykjavík;
Skúli Eiríksson, f. 8. 10. 1969, Syðri-
Völlum, V.-Húnavatnssýslu; Oddný
Ágústa Hávarðsdóttir, f. 18. 10. 1978,
Kjörvogi, 522 Strandasýslu; Bergþór
Bragi Borgarsson, f. 22. 10. 1970,
Goðdölum, Skagafirði; Margrét Ingi-
bergsdóttir, f. 26. 10. 1970, Rauða-
nesi III, 311 Borgarnesi; Harpa Björg-
vinsdóttir, f. 15. 10. 1973, lllugagötu
16, 900 Vestmannaeyjum; Erna Rós
Aðalsteinsdóttir, f. 17. 10. 1974,
Keflavíkurgötu 16, 360 Hellissandi;
Finnur Reyr Stefánsson, f. 14. 10.
1969, Skólabraut 47, 110 Seltjarnar-
39