Æskan - 01.11.1980, Blaðsíða 86
—......—......■...—
SPILAREGLUR
1. Tveir eða fleiri geta tekið þátt í
spilinu — hver einstakur fær
eina tölu eða spilapening til að
flytja á þá tölu, sem teningurinn
segir til um.
Spilið er um ævintýralegt ferða-
lag um undursamlegan skóg. Þar
hittið þið alls konar ævintýraver-
ur, sem þið hafið lesið um í bók-
um. Fyrst verðið þið að ákveða,
hvað þið ætlið að leggja undir,
eldspýtur eða eitthvað álíka. Gott
er að hver leikmaður fái 3 hver,
en hafi svona eins og sex í vara-
sjóði. Það gæti verið gott að eiga
varasjóð.
Nú hefst leikurinn, en þú kemst
ekki inn í ævintýraskóginn, nema
2, 4 eða 6 komi upp á teningnum.
Þá máttu færa um þá tölu, sem á
teningnum stendur. 1,3 og 5 eru
ónýt fyrst, en ekki seinna.
Ef leikmaður hefur fengið 4 fer
hann á reit nr. 4, og fái hann 4
aftur fer hann yfir á reit nr. 8.
8. Á þeim reit hittir hann fínan jóla-
svein, sem býður honum í sleða-
ferð. Þeir bruna áfram á nr. 14,
svo að þar var jólasveinninn
góður.
16. Það er ekki gott að stansa hér.
Þú villist milli grenitrjánna og alla
leið niður á nr. 6.
20. Nú sérðu pönnukökuhúsið
þeirra Hans og Grétu, en fyrir ut-
an stendur nornin og vill læsa í
þig klónum. Þú felur þig bak við
tré og sleppur ekki fyrr en þú
færð 6.
27. Fagra prinsessan er lukt inni í
silfurturninum. Fyrir utan hringar
drekinn sig. Þú neyðist til að
drepa hann, því að enginn skilur
prinsessur eftir Jokaðar inni".
Það tekur smá stund, svo að þú
sleppir úr einu kasti.
39. Nornin biður ieikmanninn að
sækja eldfærin niður í hola tréð.
Stóru hundarnir gæta eldfær-
anna. Þú bíður tvö köst með ten-
ingnum, meðan þú finnur hund-
ana, en hins vegar hjálpar
hundurinn með augu á stærð við
diska þér á reit nr. 49.
48. Góði, gamli maðurinn lætur leik-
manninn fá koffortið, sem flaug
svo að hann kemst umsvifalaust
á reit nr. 54.
52. Hér rekumst við á furðuverk —
gæsina, sem verpir gulleggjum.
Þú verður að bíða eina umferð,
en í þess stað færðu 2 eldspýtur
frá hverjum leikmanni.
55. Vondi björninn hrekur þig aftur á
nr. 50.
70. Hér er risinn í felum og hann
sleppir engum, nema hann borgi
þrjár eldspýtur að launum.
72