Æskan - 01.11.1981, Page 41
Sjálfvirk viðvörun er reyk- eða hitaboði, sem skynjar ef reykur eða hiti
myndast og gefur viðvörun með hljóðmerki.
slökkviliðsins (húsmóðirin), hver á að
gera tilraunir til björgunar- og
slökkvistarfa (húsbóndinn og stálpuð
börn) o. s. frv.
Æfingar
Nú hafið þið samið björgunaráætl-
un og þá er nauðsynlegt að festa sér
allt rækilega í minni. Festið því upp
teikningar sem sýna undankomuleiðir
svo allir geti glöggvað sig á þeim.
Gleymið svo ekki æfingum. Tæmiæf-
ing þarf að fara fram reglulega tvisvar
á ári. Allir eiga að taka þátt í henni.
Hræðið ekki börnin, gerið æfing-
una að leik. Komi eitthvað fyrir eru
miklar líkur á því, að þau bregðist rétt
við í stað þess að fela sig vegna
hræðslu.
Hlaupið ekki út úr svefnherberginu
án þess að íhuga málið. Þið verðið að
fullvissa ykkur um að enginn reykur,
gas eða logar geti leitað inn í her-
bergið þegar þið opnið. Séu dyrnar
heitar eða smjúgi reykurinn gegnum
skráargat eða meðfram hurðinni
skuluð þið nota neyðarútganginn. Ef
þið álítið óhætt að fara út um dyrnar
lokiö þeim þá strax á eftir ykkur.
Getið þið ekki komist út þegar í staó
(hugsanlega eruð þið í háu húsi)
haldið þá dyrunum lokuðum, opnið
glugga og kallið á hjálp. Bíðið þess að
slökkviliðið komi og nái ykkur niður.
Ykkur kann að þykja biðin löng en
oftast er liðið fljótt á vettvang.
Neyðist þið til að hoppa út, stökkvið
þá ekki í skelfingu án undirbúnings.
Takið í gluggakarminn og látið ykkur
falla en leitist við að lenda mjúklega.
Lokist þið þrátt fyrir allt inni í reyk,
munið þá að hiti og reykur stíga til
lofts. Leggist því á gólfið og andið
með stuttum andardrætti gegnum
nefið. Hyljið andlitið með votum
vasaklút eða fatnaði til að verja ykkur.
Ullarklæði vernda húðina gegn hita.
Af þessu má sjá að ýmislegt er unnt
að gera í eldsvoða uns hjálpin berst,
ef fólk áttar sig á því og hefur undir-
búið sig.
Minnist þess þó að eldsvoði er oft-
ast hamslausari, hættulegri, hraðari
og skelfilegri en þið hafið nokkru sinni
ímyndað ykkur.
Álítið ekki að gert sé of mikið úr
hættunni. Undirbúið ykkur fyrir það
versta, það sem skárra er veldur ykk-
ur þá ekki alvarlegum áhyggjum.
Háhýsi
Búið þið í háhýsi, þá á að vera í því
reyklaust, eldtraust stigahús, sem
unnt er að nota ef eldur brýst út.
í húsum sem eru lægri en átta
hæða er ekki víst að stigahús sé ör-
uggt, en þar geta tæki slökkviliðsins
orðið að liði ef stigahúsið fyllist af
reyk.
Öll hús, sem nú eru byggð hærri en
tveggja hæða, eiga að vera eldtraust.
Hver íbúð á að vera allörugg vegna
eldsvoða í næstu íbúð. Ykkur á því að
vera óhætt uns slökkviliðið kemur, í
öðrum íbúðum en þeirri sem brennur.
Komi reykur inn frá stigahúsi eða
loftræstiristum, haldið þá dyrum lok-
uðum fram í stigahúsið en loftið
reyknum út um glugga og svaladyr.
Farið aldrei fram í stigahús nema full-
víst sé að það sé óhætt.
Sjálfvirk viðvörun
Sjálfvirk viðvörun er reyk- eða hita-
boði sem skynjar ef reykur eða hiti
myndast og gefur viðvörun með
hljóðmerki. Kerfiðgeturverið rafdrifið
eða tengt við rafhlöðu.
Brunaboðinn er settur á stað, þar
sem búast má við að hiti eða reykur
nái skjótt til hans, til dæmis efst í
stigahúsi. Reykboðar gefa mjög fljótt
viðvörun og geta því bjargað lífi og
eignum sem annars gætu farið for-
görðum í eldsvoða. Eins og áður hef-
ur komið fram, þarf oft lítið til að
slökkva eld, ef þið uppgötvið hann
nógu fljótt. Viðvörunarkerfi eins og
þau sem iðnfyrirtæki, hótel, skólar og
sjúkrahús hafa sett upp eru nokkuð
dýr en nú hafa komið á markaðinn
ódýrari gerðir ætlaðar fyrir íbúðarhús.
Lofa þau kerfi mjög góðu. Þótt trygg-
ingafélög hér vilji ekki veita afslátt út á
slík tæki er það kannski meira en
peninganna viröi að vakna í tæka tíð,
ef eldur brýst út.
Þetta eru engin jólatré, pabbi. Það eru
engin Ijós á þeim.
41