Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.11.1981, Qupperneq 63

Æskan - 01.11.1981, Qupperneq 63
rt?»SKÁTAOPNAN« ifr FRAMTjÐARHySNÆÐI Skátar eru að byggja sér framtíðar- húsnæði við Snorrabrautina, á lóð sinni þar sem Skátaheimilið var áður. Byrjað er að steypa húsið upp. Byrjað var á byggingunni sem er þriggja hæða, sl. haust, og ef áætlun stenst á húsið að vera tilbúið á miðju næsta ári. Áætlað er að 1. hæðin verði tilbúin til notkunarum áramót, og þá mun Hjálparsveit skáta flytja þar inn og einnig Skátabúðin. Þar verða geymslur og 4 bílskúrar fyrir bif- reiðar sveitarinnar. Á næstu hæð verða 8 herbergi fyrir skátafundi og 2 salir, en á efstu hæðinni eru skrifstofur fyrir Bandalagið og fyrir Skátasamband Reykjavíkur, en það eru 9 skátafélög í Reykjavík. — Starfið við byggingu skátahússins gengur mjög vel, og þar á áreiðanlega eftir að fara fram mikil og góð félags- starfsemi, sem börn og unglingar sækja holl áhrif til. Skátarnir eiga orðið geysimarga skála til að stunda útilegur í. T. d. eiga skátar í Reykjavík eina 8 skála á svæðinu umhverfis Hengil, Hafnfirð- ingar eiga 2 skála í Krýsuvík, Garð- bæingar eiga skála nálægt Heið- mörk, Kópavogsskátar eiga líka skála hér í nágrenninu og svona mætti lengi telja. Félögin úti um land eiga Ifka mörg hver sína skála. Þótt þessar byggingar séu ekki allar stórar, þá liggur þarna í mikil vinna og sömuleiðis í viðhaldi þeirra. Mest vinna skátarnir sjálfir að bygg- ingar- og viðhaldsstarfinu. AÐ GANGA UNDIR ALINMÁL Sá, sem vill leika þessa list, tekur alinar langt prik eða styttra og held- ur báðum höndum um efri endann á því, en styður hinum á gólf eða jörðu. Að því búnu smeygir hann sér öllum, höfðinu fyrst, undir hendurnar, án þess að koma nokkurs staðar við og stendur upp aftur. Ekki má lista- maðurinn sleppa tökum á prikinu meðan á listinni stendur. AÐ REISA HORGEMLING Horgemlingur er reistur á tvennan hátt. Önnur aðferðin er á þessa leið: Listamaðurinn sest flötum beinum á gólfið og tekur hægri hendinni upp í hægra eyrað, en vinstri hendinni bregður hann aftur fyrir bak sér og heldur henni í buxnahaldið að aftan. Því næst á að standa upp í þessum stellingum og hoppa þrjú skref áfram. Ef það tekst, þá er gemlingurinn kominn á fæturna, annars ekki. Hin aðferðin er þannig: Fæturnir á listamanninum eru bundnir saman á tveim stöðum, um kálfana og ofan við hnéð. Hendurnar eru bundnar á bak aftur. Því næst er hann lagður niður á gólf og á að standa upp, svona á sig kominn, án þess að styðja sig nokkurs staðar við. SVEIFLA Skátar standa í þéttum hring á krítarstriki. Foringinn stendur í miðju og heldur í endann á bandi, en í hinn enda þess er festur lítill sandpoki, svo að pokinn flýgur íhring laustfrájörðu. Hann teygir frá sér bandið þar til það er nauðsynlegt fyrir skátana að stökkva upp, til þess að forða fótum sínum. Enginn má flýja, heldur stökkva beint í loft upp. Sá er úr leik, sem snertur er með pokanum, eða flýr, í stað þess að stökkva upp. Sá vinnur, sem verst lengst og einn verður eftir að lokum. ÆSKUNNI hefur farnast vel í 82 ár. Hún er stærstaog elsta barnablað landsins. 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.