Æskan - 01.05.1986, Blaðsíða 13
skemmtu bæði félagar barna-
stúknanna og aðrir listamenn -
n°kkrir þeirra þekktustu og vinsælusti
p111 Þessar mundir. Hljómsveitin
j jctcshaw lék, sigurvegararnir í
. andsmótinu í frjálsum dansi ungl-
^xel Guðmundsson og Svörtu
e Jýjurnar, sýndu listir sínar og Hjalli
p ramaður gerði fólki sjónhverfingar.
e,agar barnastúkunnar Nýársstjörn-
unnar í Keflavík léku leikþátt; stúlkur
úr bst. Siðsemd í Garði fluttu Heil-
ræðavísur Hallgríms Péturssonar og
drengir úr sömu stúku lásu samantekt
um Jónas Hallgrímsson; stúlkur úr bst.
Heklu á Hellu sýndu dans.
I lok samkomunnar voru afhent
verðlaun fyrir bestu ritgerðirnar í sam-
keppni Unglingareglunnar: Heilbrigð
Iífsgleði - hollar venjur. Aðalverð-
launin, heimilistölvu, hlaut Rut Magn-
úsdóttir, Hverfisgötu 41, Hafnarfirði.
Þrjár barnastúknanna eiga 100 ára
afmæli á þessu ári, Æskan í Reykja-
vík, Sakleysið á Akureyri og Kær-
leiksblómið í Hafnarfirði. Þær minnast
þess allar með hátíðahöldum og segj-
um við frá þeim í haustblöðum Æsk-
unnar.
er Kristinn Vilhjálmsson
Drottning og kóngur úr bst. Nýársstjörnunni
Myndir: Heimir Öskarsson
13