Æskan - 01.05.1986, Blaðsíða 27
beimferðir
jLfa áa^tlanir langt fram í tímann um að
Jota á ioft gervitunglum, ekki síst ef
pr°‘a á nýja tækni.
á heimskauta
f:. nnað dæmi um alþjóðlegt samstarf um
^^önnun er rannsókn á norðlægum slóð-
hv ’ ^0rður-íshafinu og löndunum um-
viöer«s Það. f>að eru nefnilega miklir kostir
fjj. 8erv’itunglin: Þau eru í fyrsta lagi mjög
aiið*' ^Örum bau hreyfast á annað borð
u ,a^ v'ð jörðina, aðeins bara 90 mínútur
yfir Ver^’s Jöfðina. Sum eru höfð kyrrstæð
þ m,ðbaugi jarðar. í öðru lagi munar
,-jl^ ekki uin að þjóta yfir víðáttumiklar
jö ð88ðir sem ógerlegt er að fara yfir á
n'ðri á stuttum tíma.
hö JStU Urin munu margar þjóðir taka
Um saman um rannsóknir á heim-
^nnsóknir
^ðum
skautasvæðunum og verða íslendingar þar
einnig þátttakendur, einkum haffræðingar,
veðurfræðingar og líffræðingar.
Það er sem sé mikið í bígerð í tengslum
við rannsóknir á jörðinni. En eins og þið
vitið hafa vísindamenn ekki látið sér nægja
að kánna jörðina okkar heldur líka tunglið
og reikistjörnurnar, eins og t. d. Mars og
Venus. Geimför hafa farið tiltölulega ná-
lægt fjarlægum reikistjörnum í sólkerfinu,
rannsakað segulsvið jarðar og sólar og
jafnvel halastjörnu nú nýlega - Halley.
Tímarit
um geimvísindi
Auðvitað er margt skrifað um geimvís-
indi og misþungar bækur samdar um efnið.
Þau ykkar sem kynnuð að hafa mikinn
áhuga á að fylgjast með þróuninni gætuð
reynt að hafa upp á tímaritum. Því miður
eru þau á erlendum tungumálum svo að
þessi ráðlegging á við lesendur sem eru
orðnir 14-15 ára og ráða sæmilega við
ensku — eða önnur mál. Þó að margar
myndir séu í sumum slíkum tímaritum er
mest ánægjan að geta lesið um tæknilegar
nýjungar í þessum efnum og uppgötvanir í
geimnum.
Það eru vissulega sérkennilegir heimar
sem komið hafa í ljós í geimferðum undan-
farinna áratuga: Nú vita vísindamenn
miklu, miklu meira um sólkerfið okkar en
það sem stjörnufræðingar vissu fyrir daga
Spútniks, fyrsta gervitunglsins, árið 1957.
Að lokum nefni ég ágætt tímarit um
gervitungl og geimvísindi fyrir unglinga og
fullorðna. Hver veit nema það finnist í
nálægu bókasafni: „Satellite & Space Tec-
hnology", 12-13 Little Newport Street,
London WC2H 7pp.
Kannski eitthvert ykkar lendi á Mars
einn góðan veðurdag! Eða þá eitthvert
barna ykkar eða barnabarna? Þangað ligg-
ur leiðin eða þá jafnvel enn lengra út í
geiminn — þótt heima sé best - heima á
jörðinni. En forvitnin rekur menn áfram.
Því miður verð ég orðinn of gamall og
missi af leiðangrinum, læt mér nægja að
veifa — ef ég verð þá fær til þess! Góða
ferð!
27