Æskan - 01.05.1986, Blaðsíða 33
..Vlf) FAIM MEIRI SUIKI I'I'M
FR4 IIIM M FÉLÖCIMJM“
SEGIR JÓHANN JÓHANNSSON SPRETTHLAUPARI ÚR ÍR_
ÍR-ingar hafa á undanförn-
um árum átt á að skipa stór-
um hópi ungra og efnilegra
frjálsíþróttamanna. Þeir hafa
sigrað í bikarkeppni FRÍ
árum saman og oft hefur
miklu munað á þeim og því
félagi sem næst hefur komið.
Einn þeirra sem gert hafa
garðinn frægan í ÍR á síðustu
árum er 21 árs piltur - Jó-
hann Jóhannsson. Æskan
náði tali af honum fyrir
skömmu.
Hvenær byrjaðir þú að æfa frjálsar
íþróttir?
Ég var tólf ára gamall þegar ég
byrjaði að æfa. Þá var ég í Leikni en
þegar ég var sextán ára gekk ég í ÍR
og hef verið þarsíðan.
Hverjar eru þínar aðalgreinar?
Ég hef eingöngu stundað hlaup og
þá einkum spretthlaup. Aðalgreinarn-
ar eru þá 100 og 200 metra hlaup.
Hvernig er æfingum þínum háttað í
aðalatriðum?
Það má segja að við byrjum á
haustin á að byggja upp. Þá hlaupum
við úti og byggjum upp þrek. í nóv-
ember taka síðan við lyftingar og aðr-
ar styrktaræfingar og þær standa
fram í maí. Þá er dregið úr þeim og
farið að hlaupa spretti og huga að
undirbúningi undirkeppni. Ég æfi
fimm sinnum í viku, yfirleitt tvo til þrjá
tíma í einu.
Hvenær var það sem þú fórst að sjá
árangur af æfingunum í keppni?
Þegar ég var sextán ára. Þá byrjaði
ég að keppa við þá sem eldri voru en
ég og ári seinna, þegar ég var sautján
ára, var ég valinn í unglingalandsliðið.
Jóhann ásamt Guðmundi Þórarinssyni
'Hálstþróttaþjálfara.
Átján ára keppti ég svo í fyrsta skipti i
landsliði íslands í frjálsum íþróttum.
Og ég hef verið í því síðan þá.
Hvað er hópurinn sem æfir frjálsar hjá
ÍR stór?
Það eru tuttugu og fimm manns
sem hafa æft af fullum krafti í allan
vetur. Þá á ég við þá sem eru fimmtán
ára og eldri en svo æfa líka yngri
krakkar, tíu tiltólfára.
Nú hefur þú keppt gegn erlendum
jafnöldrum þínum. Eru íslenskir kepp'
endur í unglingaflokkum sam-
keppnisfærir við erlenda jafnaldra?
Við eigum nokkra unglinga sem
standa erlendum jafnöldrum fyllilega
jafnfætis, aðallega í spretthlaupum oð
stökkum. Það má til dæmis nefna
Bryndísi Hólm og Svanhildi Kristjóns-
dóttur. En þeir eru ekki margir og
breiddin er lítil hjáokkur.
Eru einhverjar greinar vinsælli en aðr-
arum þessar mundir?
Það er mikil gróska í spjótkasti
núna eftir að Einar Vilhjálmsson og
Siguröur Einarsson hafa staðið sig
jafnvel og raun bervitni.
Hvar æfið þið ÍR-ingar?
Á veturna æfum við í Baldurshaga,
^ndir stúkunni á Laugardalsvellinum.
Þar er ekki góð aðstaða, aðeins 50
metra löng braut. Það eru lítil sem
®nQin tök á að stunda kastgreinar.
Ir|nanhússaðstöðu fyrir frjálsar íþróttir
^antar. Hún er víðast annars staðar í
heinninum en ekki hér á landi. Það er
siæmt. Á Valbjarnarvelli er mjög erfitt
aefa hástökk og stangarstökk.
h|laupabrautin þar er þokkaleg núna
en bað vantar mikið á að hún sé jafn-
9óð og brautir erlendis.
. Ólafur Unnsteinsson þjálfar ÍR-inga
' sumar. Hann á mikið verkefni fyrir
ndndum. Jóhann telur að hin félögin
Veiti IR-ingum meiri keppni í sumaren
e^ndanförnum árum. Hann telur að
^R-ingar og HSK-menn auk FH-inga
Verði skæðir keppinautar. Það eru
°^aorð Jóhanns Jóhannssonar ÍR-
ln9s í Æskuviðtali. Vonandi fylgist þið
með hvernig sú spá hans rætist.
Wll VOR I FRJALSIIM
ÍPRÓTTLM Á ÍSLAJVDI
íslenskir frjálsíþróttamenn hafa náð
mjög góðum árangri á síðustu árum.
Hæst ber þar árangur Einars Vil-
hjálmssonar sem skipað hefur sér í
raðir bestu spjótkastara veraldar á
stórmótum víða um heim. Og nú á
síðustu mánuðum hefur athygli
manna beinst að öðrum íslenskum
spjótkastara, Sigurði Einarssyni. Þeir
hafa náð lengst af íslenskum frjáls-
íþróttamönnum en aðrir hafa einnig
náð mjög góðum árangri. Sem dæmi
má nefna Odd Sigurðsson, íris Grön-
teldt, Oskar Jakobsson, sem reyndar
er hættur keppni, Kristján Harðarson,
Þórdísi Gísladóttur og Véstein Haf-
steinsson. En hvernig stendur á þess-
um miklu framförum? Svarið við því er
að fslenskum frjálsíþróttamönnum
hefur gefist kostur á að æfa og keppa
um leið og þeir hafa stundað nám í
Bandaríkjunum. Þar eru skilyrði til
æfinga og keppni með því besta sem
býðst í heiminum en aðstööuleysi er
meðal þess sem íslenskir keppnis-
menn hafa kvartað yfir. Góð aðstaða
býðst vestra og háskólar þar gera
mikið til að laða til sín góða íþrótta-
menn og búa í haginn fyrir þá þegar
þeir eru komnir.
Einar Vilhjálmsson vakti heims-
athygli í fyrra með frábærum árangri á
stigamótum Alþjóðafrjálsíþróttasam-
bandsins. Þar var hann að keppa við
bestu menn í heimi og hafði oft betur.
Þar með vakti hann athygli á íslandi
og þeirri þjóð sem landið byggir. Einar
er ungur ennþá og á áreiðanlega oft
eftir að sýna á erlendum vettvangi
hvað í honum býr. Hann skar sig úr að
því leyti að hann kvartar aldrei undan
misgóðri aðstöðu heldur gerir sitt
besta hver sem skilyrðin eru. Hann er
stærsta blómið sem spratt upp á nýju
vori í frjálsum íþróttum á íslandi.
Spurningin er hvort við eigum eftir að
sjá fleiri slík á næstu misserum.
Þórdls Glsladóttir og Þráinn Hafsteinsson
(Þráinn var þjálfari við háskólann í Ala-
bama ’85—’86).
VEISTU
að Jóel Sigurðsson átti islandsmet í
spjótkasti í 25 ár, frá 1949 til 1974?
að Vilhjálmur Einarsson var kjörinn
íþróttamaður ársins fimm sinnum,
1956-1958 og 1960-1961?
að Jesse Owens sigraði í fjórum
areinum á Ólympíuleikunum í Berlín
1936?
að fyrsta viðurkennda íslandsmetið í
kúluvarpi var sett árið 1925. Þá kast-
aði Frank Friðriksson 10,83 m.
að Bob Beamon stökk 8,90 m í lang-
stökki á Ólympíuleikunum í Mexíkó?
Það heimsmet stendur enn (11. maí
1986).
að Emil Zatopek sigraði í 5000
metra, 10.000 metra og maraþon-
hlaupi á Ólympíuleikunum í Helsinki
1952?
að Valbjörn Þorláksson tók þátt í
þrennum Ólympíuleikum? Hann
keppti í Róm 1960, Tokyó 1964 og í
Mexikó 1968.
32
íþróttir
33