Æskan - 01.05.1986, Blaðsíða 19
^femnia mín
^lamma mín getur stundum verið
mJög leiðinleg. Annars er hún oftast
a§®t. Ef mig langar til einhvers eða í
e'tthvað en þykist viss um að hún segi
nei reyni ég að spyrja hana þegar hún
er að f|ýta sér. Þá er von til þess að
un segi já í hugsunarleysi.
. ^tamma er mjög sparsöm. Hún velt-
lr hverjum eyri milli handanna áður en
un eyðir honum. Svo er hún líka
taf í megrun eftir „skandalskúrn-
um“
. ^amma vill endilega að ég taki lýsi
nverjum degi en ég er ekki á sama
£má'i- í fyrra keypti hún sér myndband
n |tún tekur aðeins upp myndir með
Srnjattpöttunum og brúðubílnum.
^jundum vildi ég gjarna að mamma
Væri svolítið öðruvísi en hún er. Ann-
ars er hún ágæt.
Góð stúlka
Kæra Æska!
Mamma mín er góð við mig og hún
skammar mig sjaldan. Kannski er ég
svona góður eða mamma svona góð!
Ef mér leiðist huggar mamma mig og
hún gefur mér líka góð ráð. Oft hefur
hún fengið mig til að halda áfram við
það sem ég hef verið að gefast upp við
og hún gerir stundum ýmislegt fyrir
mig.
Jón Eysteinn
Vað allt þetta kallast nú verður (bara)
s ekki betri heldur uppreisnargjarn,
°g þar fram eftir götunum. Best er
r$ða málin skynsamlega og án alls
sings sem þara ygjjyj. streitu og
0'útum.
Eg vék aðeins að þroskaskeiðinu
j. an- Allir foreldrar ættu að lesa
^ðslubækur sem gefnar hafa verið út
111 það og fást í bókabúðum og eru á
allflestum bókasöfnum því að slík
fræðsla var ekki öllum tiltæk fyrir
u. þ. b. 20 árum er foreldrar okkar
voru í skóla.
Barn er oftast bundnara móður en
föður og mæður vilja ráða fatavali og
slíku. „Þetta er alltof hneykslanlegt
eða druslulegt. Aldrei hefðum við lát-
ið sjá okkur svona klædd,“ segja þær.
EN, móðir verður að gera sér grein
Lesendur hafa sent okkur nokkrar
skrítlur. Meðal annars þessar:
- Nei, Bjarni! Hvað ert þú að gera
hér í Lundúnum?
— Ég er í brúðkaupsferð.
— Til hamingju vinur! En hvar er
konan?
- Hún er heima á íslandi. Hún hef-
ur komið hingað áður.
NN
Einu sinni var kona sem alltaf var að
fara á verkstæði með bílinn sinn. Það
var vegna þess að gírkassinn brotnaði
hvað eftir annað. Þegar viðgerðar-
manninum var farið að ofbjóða spurði
hann hvernig stæði á þessu. Og konan
svaraði:
„Ég veit það hreint ekki. Ég byrja
bara á því að setja í fyrsta gír, síðan í
annan, þriðja og fjórða og að lokum
beint í „rall“gírinn.
Þá spurði maðurinn:
- Hvernig er þessi „rall“gír
merktur?
Og konan svarar:
- Bara með R þarna í horninu . . .
Obba
Jón: Hvað er konan þín gömul?
Karl: Hún er ekkert gömul.
Jón: Hve ung er hún þá?
Karl: Hún er ekki ung heldur.
Jón: Á hvaða aldri er hún eiginlega,
blessuð?
Karl: Hún er ekki á neinum sérstökum
aldri.
Jón: Nú?
Karl: Já, ég er ekki kvæntur.
Herborg
fyrir því að litla sæta krúttið vex upp
fyrr en varir og með aldrinum vill það
ráða æ meiru.
Mæður verða að skilja að þær hafa
alls ekki endalaus yfirráð.
Að lokum: Mæður og feður! Athug-
ið að þið eru aðalfyrirmyndir barn-
anna og þau sem þeim þykir vænst um
þó að þau geri sér ef til vill ekki grein
fyrir því. Anna Kapitola
19