Æskan - 01.05.1986, Blaðsíða 6
SVIPMYNDIR
Leikendur í Glókolli, 3. R.Ó. Standandi frá vinstri: Brynjar, Dagrún, Benedikt, Guðjón, Kári, Gunnar, Jóhann, Þórdfs, Herbert, Eínar’
Sitjandi fremst: Tyrfingur, Elísabet, Iris, Jónína, María, Ragnheiður, Katrín. Sitjandi fyrir miðju: Jón, Ágúst, Guðrún, Ágústa
Rúnar Ármann Arthursson:
Nemendur þriðja bekkjar R.Ó. í
Barnaskólanum á Selfossi færðu í vet-
ur í leikbúning söguna um Glókoll og
æfðu með aðstoð kennara. Þegar þeir
höfðu æft nóg héldu þeir bekkjarkvöld
og buðu foreldrum sínum og fleiri
gestum á leiksýningu í skólastofunni.
Var leikriti og leikendum forkunnar-
vel tekið og allir skemmtu sér hið
besta. Það sem meira var, þeir sem
búnir voru að gleyma margföldunar-
töflunni fengu þarna tækifæri til að
rifja hana upp á skemmtilegan hátt.
Og þeir sem enn höfðu ekki náð valdi
á henni lærðu hana betur. Átti það að
minnsta kosti við um þann sem lék
Glókoll og bekkjarfélaga hans. Gg
hafi einhver barnanna enn ekki lært
margföldunartöfluna til fulls vantar
ekki mikið á það þó að þau séu aðeins
níu ára.
Sigurbjörn Sveinsson, höfundur
sögunnar um Glókoll, skrifaði margar
sögur fyrir börn. Nokkrar gaf hann út í
bók sem kölluð var Bernskan og enn
eru sögur hans vinsælt lesefni hjá
mörgum börnum. Sagan um Glókoll
var auk þess prentuð í lestrarbókum
og er enn lesin víða í skólum. Þar segir
frá því er Glókollur, sonur karls og
kerlingar í koti, heldur út í heim a
freista gæfunnar og bjargar álfaþm
úr klóm skessu einnar mikillar. Ah
drottning býður Glókolli að ne'n‘
nafn sitt ef hann þurfi á að halda. ,
Glókollur heldur síðan heim
kóngsgarð og ræður sig í vinnu v1^
hirðina. Það verður strax kært me^
honum og Fjólu kóngsdóttur sem se
marga vonbiðla en leist ekki á ne>n^
nema Glókoll. Líkar kónginum Þa
stórilla og lætur stinga Glókolli í syar
holið. Nefnir Glókollur þá álfkonun
sem birtist og kennir honum margfö'
unartöfluna þar í fangelsinu.
6